Innlent

Bein út­sending: Kynnir að­gerða­á­ætlun gegn fá­tækt barna

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra.
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Vísir/Lýður Valberg

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir fyrstu heildstæðu stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna á Íslandi. Hægt verður að fylgjast með málþinginu í beinni útsendingu á Vísi.

Fjallað verður um áhrif efnahagslegrar stöðu á líðan og þátttöku barna, hvaða hópar standa höllum fæti og hvernig megi bæta stuðning og jafna tækifæri. Að loknum erindum verður efnt til samtals um niðurstöðurnar. 

Málþingið fer fram í Veröld - Húsi Vigdísar og stendur yfir frá klukkan 8:30 til 10:30.

Dagskrá

08:30-09:00:

Móttaka og morgunkaffi

09:00-09:10:

Ávarp mennta- og barnamálaráðherra Inga Sæland

09:10-09:35:

Fátækt barna og staða barnafjölskyldna, helstu áskoranir og niðurstöður nýlegrar skýrslu: Kolbeinn Stefánsson og Halldór S. Guðmundsson

09:35-09:50:

Þátttaka barna og ungmenna á Íslandi í skóla- og frístundastarfi: Misjöfn tækifæri - Ragný Þóra Guðjohnsen og Hans Haraldsson

09:50-10:00:

Aðgerðir gegn fátækt barna: Stefna, framkvæmd og framtíðarsýn - Kolbrún Áslaug Baldursdóttir

10:00-10:20:

Samtal við hagaðila um leiðir til að draga úr fátækt barna. Frá rannsóknum til aðgerða.

EAPN á Íslandi – Samtök gegn fátækt og félagslegri einangrun - Hildur Oddsdóttir

Stattu með sjálfri þér – Hjálparstarf Kirkjunnar - Birgitta Baldvinsdóttir og Eva Björk Jónsdóttir

Varða – rannsóknastofnun vinnumarkaðarins - Kristín Heba Gísladóttir

Samantekt og lokaorð:

Salvör Nordal – Umboðsmaður barna




Fleiri fréttir

Sjá meira


×