Gögnin sýna blekkinguna svart á hvítu Snærós Sindradóttir skrifar 30. mars 2017 06:00 „
Niðurstöður skýrslunnar eru studdar þannig gögnum að um þetta verður ekki deilt meir,“ segir Finnur Vilhjálmsson, starfsmaður rannsóknarnefndar Alþingis um söluna á Búnaðarbankanum. Sterkur orðrómur hefur verið uppi í áraraðir um að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser hafi verið leppur annarra félaga við kaupin á Búnaðarbankanum. Fréttablaðið greindi fyrst frá því á mánudag en skýrsla rannsóknarnefndarinnar, sem kynnt var í gær, sýndi blekkingarnar sem beittar voru svart á hvítu. Síðastliðið vor fékk Umboðsmaður Alþingis ábendingu sem þótti svo traust að sett var af stað rannsókn á kaupunum. Eins manns nefnd Kjartans Björgvinssonar var skipuð í þeim tilgangi að varpa ljósi á hvernig raunverulega var staðið að sölunni. Fjölmennari nefnd hefði getað dregið víðtækari ályktanir um mögulegt glæpsamlegt athæfi en ef lög voru brotin varðandi kaupin, þá eru þau fyrnd í dag.Finnur Vilhjálmsson og Kjartan Björgvinsson hafa rannsakað kaupin á Búnaðarbankanum frá því í júlí á síðasta ári. Fréttablaðið/Anton BrinkMennirnir tveir segja að þrátt fyrir tímasetninguna viti þeir ekki til þess að Panamalekinn, sem var opinberaður síðastliðið vor, hafi hrint þeirri atburðarás af stað sem leiddi til þessarar niðurstöðu. „Það eru engin gögn sem koma beint þaðan, ekki svo við vitum. Það er auðvitað ákveðinn samhljómur að því leyti að lögmannsstofan Mossack Fonseca stofnar Marine Choice Limited, sem er aflandsfélag Ólafs Ólafssonar og nýtur góðs af fjármununum. Og félögin eiga þau sammerkt að vera á Tortóla, en það hefur ekkert með lekann sem slíkan að gera okkur vitanlega,” segir Kjartan. Gögnin sem nefndin vann eftir lágu öll fyrir hjá opinberum aðilum á borð við embætti sérstaks saksóknara, Fjármálaeftirlitið, Ríkisendurskoðun, slitastjórn Kaupþings og á fleiri stöðum. Í þessu máli er ekki hægt að tala um einhverja einstaka uppljóstrara, ef frá er talinn einn afar mikilvægur heimildamaður.„Eini heimildarmaðurinn í þeim skilningi er fyrrverandi meðeigandi í Hauck & Aufhäuser sem upplýsti nefndina um að ef þetta hefði verið raunveruleg fjárfesting af hálfu bankans þá hefði hún alltaf verið tekin fyrir í stjórninni, þar sem hann sat. Hann tjáði nefndinni að samkvæmt hans besta minni hefði þetta mál aldrei komið til kastar stjórnar og því hefði bankinn ekki verið fjárfestir," segir Kjartan. Finnur tekur undir þetta. „Þetta voru ansi markverðar upplýsingar að fá því fyrir utan þessa tvo menn sem tengdust þessu innan bankans, það er Peter Gatti sem var einhvers konar framkvæmdastjóri og andlit út á við, og svo Martin Zeil sem vann að baksamningnum, er hann eina nafnið sem skrifaði undir þetta umboð.“ Í gær sendi Ólafur Ólafsson frá sér yfirlýsingu þar sem hann hafnar niðurstöðu nefndarinnar. „Gögnin sem skýrslan byggir á eru samtímagögn. Gögnin eru ítarleg og greina frá allri atburðarásinni og hvernig var staðið að þessum blekkingum með ítarlegum hætti,“ segir Kjartan. Hann tekur fram að nefndin hafi sýnt mikla varfærni í framsetningu þeirra sönnunargagna sem lágu fyrir. Aðeins þeir starfsmenn Kaupþings sem tóku með beinum hætti þátt í verknaðinum eru nafngreindir, en ekki þeir sem nefndin gat aðeins staðfest að hefðu fengið senda til sín tölvupósta um viðskiptin án þess að svara þeim eða skrifa sjálfir undir einhverja gjörninga. „Þetta er rakið á grundvelli gagnanna. Gögnin tala. Ég held að almenningur viti að auðvitað gerist það oft þegar umræða er óþægileg fyrir einhverja aðila að það koma einhverjir og reyna að afvegaleiða umræðuna. En þá verður fólk bara að standa vaktina og láta ekki afvegaleiða sig.“ Óþekktar slóðir aflandsfélagaVinna rannsóknarnefndarinnar fór með þá félaga, Kjartan og Finn, á áður óþekktar slóðir. The International Trust Company of Niue, félag sem átti bæði K.V. Associates S.A sem Kaupþing lánaði í gegnum og Allan Corporation sem Kaupthing Bank Luxemobourg lánaði í gegnum, er staðsett á eyjunni Niue. Nefndarmenn höfðu ekki heyrt af eyjunni fyrr en til rannsóknarinnar kom en hún er staðsett í suður kyrrahafi og virðist heyra undir Nýja Sjáland. Eyjan er aðeins minni en Reykjavík að flatarmáli og íbúar hennar eru ríflega 1600 talsins. Af myndum af eyjunni að dæma er hún ekki aðeins paradís á jörðu fyrir peninga heldur líka ævintýragjarna ferðalanga.Hver á Dekhill Advisors Ltd.? Þann 18. janúar 2005 greiddi Hauck & Aufhäuser 46,5 milljónir Bandaríkjadollara, sem samsvarar 2,9 milljörðum íslenskra króna, inn á reikning aflandsfélagsins Dekhill Advisors. Bankareikningurinn er í útibúi svissneska bankans Julius Bär & Co í Zürich. Greiðslan samsvaraði nærri helmingi þess hagnaðar sem félagið Welling & Partner hafði hlotið eftir söluna á bankanum. Félagið Dekhill Advisors Ltd. kemur hvergi annars staðar fyrir í þeim gögnum sem rannsóknarnefnd Alþingis hafði. Nefndin hafði einungis formlegt skráningarvottorð félagsins, sem stofnað var á Bresku Jómfrúaeyjum 25. júlí 2005. Rannsóknarnefndin veit hvorki hver eða hverjir standa að baki félaginu og ekki hvað varð um fjármunina. Nefndin dregur þó þær ályktanir miðað við önnur gögn að það hljóti að vera Kaupþing sjálft eða aðilar tengdir Kaupþingi. Restin af bankareikningi Welling & Partners, samtals 58 milljónir dala, var greidd inn á félag Ólafs Ólafssonar, Marine Choice Limited. Þegar því var lokið var reikningum Welling & Partners lokað. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Salan á Búnaðarbankanum Mest lesið Ísbúð Huppu flytur af Nesinu á Ægissíðuna Viðskipti innlent Viðbrögð bankanna eftir vaxtamálið vonbrigði Viðskipti innlent Gera ráð fyrir svipuðum hagvexti og í Covid Viðskipti innlent Íslandsbanki lækkar vexti Viðskipti innlent Craft Burger Kitchen hafa lokað dyrunum í síðasta skipti Neytendur Skilja töskur eftir ef von er á kröftugum mótvindi Viðskipti innlent Indó ríður á vaðið Viðskipti innlent Hækka árgjöld kreditkorta í fyrsta sinn í sjö ár Neytendur Lækkuðu vegna vaxtamálsins: „Lánakjör heimilanna hafa snarlega versnað“ Viðskipti innlent Stefna Jóni Þorgrími vegna Rauða heftarans Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ísbúð Huppu flytur af Nesinu á Ægissíðuna Viðbrögð bankanna eftir vaxtamálið vonbrigði Gera ráð fyrir svipuðum hagvexti og í Covid Íslandsbanki lækkar vexti Óboðlegt að stórir aðilar auki arðsemi í krafti fákeppni Bentu hvor á annan og hlutu ólík örlög Taka minna mark á leiðsögn nefndarinnar og spá lækkunum Fyrrverandi forseti Hæstaréttar fer yfir svör gervigreindarinnar Indó ríður á vaðið Lækkuðu vegna vaxtamálsins: „Lánakjör heimilanna hafa snarlega versnað“ „Aumingjalegt skref“ í rétta átt Fullt tilefni enda hafi aðstæður gjörbreyst á skömmum tíma Svona virka verndaraðgerðir ESB vegna kísilmálms Bein útsending: Rökstyðja lækkun stýrivaxta Seðlabankinn lækkar óvænt stýrivexti Skilja töskur eftir ef von er á kröftugum mótvindi Efnahagslegt tjón lítið ef nokkuð en öll prinsipp þverbrotin „ESB hefur nú sýnt klærnar og sitt rétta andlit“ Frá Sýn til Fastus Þrír forstöðumenn til starfa hjá Íslandsbanka Kortavelta á fljúgandi siglingu og vaxtalækkun ólíkleg „Það er verið að brjóta gegn grundvallaratriðum EES-samningsins“ „Varnarsigur“ að fá inn texta um samráð um áhrif tollanna Selur hjörð en ekki jörð Samþykktu verndartolla sem bitna á Íslandi og Noregi Orri einbeitir sér að bæjarmálunum og Kári tekur við Stjórnendur fyrirtækja svartsýnir Vigdís til Hringborðs hafs og eldis Hver er munurinn á séreign og samtryggingu? Óboðlegt að sitja undir íþyngjandi regluverki en njóta ekki ágóðans Sjá meira