Aprílspá Siggu Kling – Vatnsberinn: Þú hefur þá snilligáfu að fá manneskjur til að segja þér allt 7. apríl 2017 09:00
Elsku Vatnsberinn minn, ég get sagt það með hreinni samvisku að þetta er ár vatnsberans. Þetta tímabil mun svo sannarlega sýna úr hverju þú ert gerður. Þú færð svo djúpan skilning á því hvernig þú ætlar að leysa lífsgátuna þína. Þessu svipar til þess að þú sért að lesa spennandi skáldsögu og endirinn sé miklu betri en þú hefur nokkurn tímann þorað að vona. Þú átt eftir að skilja hvað þú ert frábær félagsskapur, hvað þú ert fyndinn og svo hreinlega með þetta. Stundum áttu það til að fara aðeins yfir strikið, en þú munt alltaf komast upp með það sem þú segir með hreinskilni þinni því að þú ert bara svo skemmtilegur. Fólk á svolítið eftir að liggja á trúnó með þér, og þú hefur þá snilligáfu að fá manneskjur sem eru lokaðar og treysta engum til að segja þér allt. Það má vel vera, að þegar þú varst yngri hafir þú verið svolítið feiminn, en þú ert algjörlega búinn að henda því. Lykillinn að velferð þinni á þeim tíma sem þú ert að fara inn í er að þú verður að læra hvenær þú átt að stoppa. Kannski er hægt að líkja því við að þegar þú ert að landa fiski, þá dregurðu hann of hratt inn og getur misst bráðina. Stundum þarftu aðeins að stoppa með veiðistöngina, draga að landi, stoppa, draga að landi – þú þarft að vera svolítið slyngur í samningum og því sem þú vilt að gerist. Og elsku hjartað mitt, lífið er bara ástarævintýri og sérstaklega þegar þú átt í hlut. Þú átt svo auðvelt með að heillast, og líka auðvelt með að detta úr því að vera ástfanginn. Það mikilvægasta fyrir þig hvort sem þú ert í sambandi eða á lausu er að velja þér ástargyðju eða goð sem er er skemmtilegt og ber þig á höndum sér. Svo þarft þú bara að krydda ástina með salti og pipar og vera þakklátur fyrir hvað þú ert í raun heppinn í ástamálum. Ástin fyrir þig er eins og svartigaldur svo þú þarft að læra leikinn að vera stabíll í ástinni og sjá hvað mikið þú ert að græða á að hafa þessa manneskju í lífi þínu. Mottó – Þú ert sá sem er valinn í landsliðiðFrægir Vatnsberar: Pacas hans Begga, Geir Sveinsson handknattleiksþjálfari, Halla himintungl, Clark Gable leikari, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir borgarfulltrúi, Yoko Ono, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Katrín Jakobsdóttir þingkona, Hilmir Snær Guðnason leikari, Rikka sjónvarpskona, María Ólafsdóttir Júróvisjónstjarna, Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kastljóss, Gunna Dís útvarpskona, Höddi Magg, Andrea Róberts mannauður, Hilmar Hafsteinsson ofurfasteignasali, Rut Roberts flugfreyja hjá Icelandair, Ragnheidur Guðfinna sálfræðingur
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Lífið „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Menning Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Lífið Fleiri fréttir Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Robert Wilson er látinn Gary Busey játar kynferðisbrot Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Einar og Milla eignuðust dreng Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Góðhjartaður dýrahirðir og tæknigúrú Draumabrúðkaup í sextíu ára gömlum kjól frá ömmu Tugþúsundir vottuðu Ozzy virðingu Kokkarnir á Strikinu með stjörnur í augunum þegar Bon Jovi mætti Síðasta Þjóðhátíðin í bili hjá FM95BLÖ Spámenn bjóða betur en veðurfræðingar Ætlar í pásu frá giggum Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Sjóðheitt og splunkunýtt Hollywood par Katrín Edda selur í Hlíðunum Þriggja ára snáði stal senunni í messu í Fljótshlíð Fyrstu tónleikar Purrksins í fjörutíu ár Sweeney sökuð um kynþáttahyggju Sjá meira