Litfögur undur himingeimsins Starri Freyr Jónsson skrifar 5. apríl 2017 18:00 Hugmyndin um Stóru Lúnu kviknaði af eftirminnilegum draumi. MYND/ERNIR
Stóra Lúna er hugarfóstur Lindu Guðrúnar Karlsdóttur og um leið frumraun hennar á sviði hönnunar. Linda framleiðir skemmtilegar plánetu- og tunglmyndir en hver þeirra er samansett úr mörgum ljósmyndum, er svokölluð mósaíkmynd, og fyrir vikið eru myndgæðin afar mikil. „Gígar og smáatriði á yfirborðinu verða t.d. mjög skýr og greinileg. Hverri mynd fylgir svo texti sem segir frá helstu kennileitum og útskýrir hvar, hvenær og hvernig ljósmyndin var tekin og unnin. Myndirnar verða einhvern veginn ennþá merkilegri þegar maður les um ferlið á bak við þær.“ Hugmyndin að myndunum er óvenjuleg. Fyrir tveimur árum dreymdi Lindu mjög raunverulegan og eftirminnilegan draum þar sem hún sá plánetur sólkerfisins með berum augum. „Þær birtust mér hver á fætur annarri og snerust löturhægt svo ég missti ekki af einu einasta smáatriði. Ég fékk svo að snúast með þeim um himingeiminn,“ segir hún og brosir.Jörðin kemur vel út á vegg.Hjálplegir draumar Hún segir pínu erfitt að útskýra hversu mögnuð upplifun þetta hafið verið en hana dreymdi Litfögur undur himingeimsins Eftirminnilegur draumur varð kveikjan að Stóru Lúnu, hugarfóstri Lindu Guðrúnar Karlsdóttur. Undir því merki framleiðir hún plánetu- og tunglmyndir. Næst á dagskrá er þátttaka í markaðstorgi í Borgarleikhúsinu. drauminn þegar hún var að takast á við óvænt veikindi. „Draumurinn hjálpaði mér á vissan hátt að ná áttum eftir áfallið sem fylgdi þeim. Hann sýndi mér einhvern veginn stóra samhengið. Eftir þetta kviknaði svo einlægur og djúpur áhugi á þessum fjarlægu fyrirbærum sem ég hafði fengið að sjá í draumnum.“ Í kjölfarið skoðaði og las hún sér til um pláneturnar og byrjaði að svipast um á netinu eftir fallegri veggmynd af hnetti til að hafa heima í stofu. „Þegar ég fann ekkert sem höfðaði til mín ákvað ég að láta sérútbúa fyrir mig mynd, nákvæmlega eins og ég hafði séð hana fyrir mér: stóra og nákvæma, líkt og pláneturnar höfðu birst mér í draumnum.“ Hún fékk strax mjög jákvæð við- brögð við myndinni frá vinum og kunningjum og tók í framhaldi af því ákvörðun um að prófa að fara með þetta lengra.„Í hönd fór ferli þar sem ég fann og valdi myndir frá geimrannsóknarstofnunum og stjörnuljósmyndurum og fékk leyfi til að nota þær í hönnunina.“Tunglið rís yfir kaffivélinni.Grípandi litir Eftir miklar pælingar og vangaveltur voru það myndir af jörðinni, tunglinu, Mars og Plútó sem urðu fyrir valinu. „Það var ekkert vísindalegt á bak við þetta val, mér fannst þessar tilteknu myndir einfaldlega fallegastar af öllu því sem ég hafði skoðað; grípandi litir og falleg mynstur á yfirborðinu.” Næsta skref var að framleiða lítið upplag í desember á síðasta ári og ýta verkefninu úr vör með þáttöku í ,,pop-up“ markaði í Hafnarhúsinu um jólin en Linda Guðrún var að eigin sögn himinlifandi yfir viðtökunum. „Næst á dagskrá hjá Stóru Lúnu er þátttaka í markaðstorgi sem hefur verið sett upp í Borgarleikhúsinu í tilefni af sviðslistahátíðinni Fórn sem Íslenski dansflokkurinn stendur fyrir. Svo ætla ég bara að halda áfram að þróa verkefnið í rólegheitunum, skella mér á stjörnuskoðunarnámskeið í haust og halda áfram að kynna mér undur himingeimsins.“ Hægt er að fylgjast með Stóru Lúnu á Facebook.Rauða plánetan Mars. Tungl og plánetur Lindu Guðrúnar eru samsettar úr mörgum mósaíkmyndum.
Tíska og hönnun Mest lesið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Bíó og sjónvarp Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Lífið Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Lífið samstarf Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Fleiri fréttir Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Synir Britney gengu tískupallinn í París „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ „Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Hannaði frægasta brúðarkjól ársins Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls Dóttir Obama í íslenskri hönnun Heitustu tískutrendin í sumar „Það má herma“ Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM „Ég sef í gallabuxum“ Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni „Mun aldrei geta þakkað henni nógu mikið fyrir“ Sjá meira