Moyes sér eftir að hafa hótað íþróttafréttakonu barsmíðum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. apríl 2017 13:40 Moyes kom sér í klandur með ummælum sínum sem hafa verið gagnrýnd. vísir/getty
David Moyes, knattspyrnustjóri Sunderland, segist sjá mikið eftir því að hafa hótað að berja íþróttafréttakonu BBC.Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag var Moyes ekki sáttur með spurningu Vicki Sparks hjá BBC eftir markalaust jafntefli Sunderland og Burnley í síðasta mánuði. „Ég myndi passa mig. Þú gætir verið slegin, jafnvel þótt þú sért kona. Passaðu þig næst þegar þú kemur,“ sagði Moyes við Sparks eftir að viðtalinu lauk. Moyes bað Sparks seinna persónulega afsökunar og á blaðamannafundi í dag sagðist hann sjá eftir öllu. „Þetta gerðist í hita augnabliksins,“ sagði Moyes. „Ég er ekki svona maður. Ég gengst við þessum mistökum. Ég talaði við fréttakonuna sem samþykkti afsökunarbeiðni mína.“ Moyes hefur víða verið gagnrýndur fyrir ummæli sín, m.a. af Dr. Rosenu Allin-Khan, skuggamálaráðherra Verkamannaflokksins í íþróttamálum. „Þetta er smánarlegt. David Moyes getur ekki komist upp með svona karlrembuhótanir. Enska knattspyrnusambandið þarf að grípa í taumuna,“ sagði Allin-Khan. Moyes og lærisveinar hans í Sunderland sitja á botni ensku úrvalsdeildarinnar með aðeins 20 stig, átta stigum frá öruggu sæti. Sunderland sækir Leicester City heim á morgun.
Enski boltinn Tengdar fréttir Moyes hótaði að berja íþróttafréttakonu David Moyes, knattspyrnustjóri Sunderland, hefur beðist afsökunar á því að hafa hótað íþróttafréttakonu barsmíðum. 3. apríl 2017 09:00 Mest lesið Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Sport Tárin flæddu þegar Leerdam tróð upp í gagnrýnendur Sport West Ham - Man. Utd. | Vinnst fimmti sigurinn í röð? Enski boltinn Vonn tjáir sig eftir atvikið óhugnanlega: „Sé ekki eftir neinu“ Sport Bannað að hafa hjálm sem sýnir látin fórnarlömb Rússa Sport Medalíur að skemmast á Vetrarólympíuleikunum Sport Fjórum hent úr húsi eftir hópslagsmál Körfubolti Forsetinn telur íþróttafólkið best til þess fallið að meta eigin stöðu Sport Fer frá föður sínum í faðm Guðjóns Vals: „Þetta er risastórt“ Handbolti „Ég svaf ekki mikið í nótt“ Sport Fleiri fréttir Tottenham í tómu tjóni: Aðeins þremur stigum frá fallsæti Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United West Ham - Man. Utd. | Vinnst fimmti sigurinn í röð? Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Sjá meira
Moyes hótaði að berja íþróttafréttakonu David Moyes, knattspyrnustjóri Sunderland, hefur beðist afsökunar á því að hafa hótað íþróttafréttakonu barsmíðum. 3. apríl 2017 09:00