Sýknaður af ákæru um kynferðisbrot Birgir Olgeirsson skrifar 12. apríl 2017 16:50 Það var álit dómsins að að gegn neitun mannsins væri ekki hafið yfir skynsamlegan vafa að hann hafi haft ásetning til að brjóta gegn konunni með athöfnum sínum. Vísir
Héraðsdómur Suðurlands hefur sýknað karlmann af ákæru um kynferðislega áreitni gegn ungri konu. Var hann sakaður um að hafa káfað á kynfærum konunnar, beðið hana um að koma við kynfæri sín, fengið hana til að koma við getnaðarlim sinn í gegnum nærbuxur og brotið gegn blygðunarsemi hennar með því að liggja nakinn uppi í rúmi undir sæng með konunni. Við aðalmeðferð málsins kom fram að mikill aldursmunur væri á manninum og konunni, en á vef Ríkisútvarpsins var greint frá því að maðurinn væri á sextugsaldri en konan 23 ára. Þá kom einnig fram að bæði búi þau við nokkra þroskahömlun en þroskahömlun konunnar er mun meiri en mannsins. Í dómi Héraðsdóms Suðurlands kemur fram að maðurinn og konan væru aðeins tvö til frásagnar um þá atburði sem lýst er í ákæru. Að mati dómsins var konan trúverðug og ýkjulaus í framburði sínum en að framburður mannsins hefði tekið breytingum frá því hann í upphafi vildi ekki kannast við nokkur kynferðisleg samskipti þeirra á milli og kannaðist ekki við að hafa verið með konunni í rúmi en kvað þau aðeins hafa verið í sófa á heimili hans. Að mati dómsins bar framburður mannsins þess merki frá upphafi að hann hafi leitast við að draga úr kynferðislegri háttsemi sinni gagnvart konunni og fegra sinn hlut. Var því framburður konunnar lagður til grundvallar við úrlausn málsins. Dómurinn lagði mat á það hvort háttsemi mannsins hafi verið óvelkomin og að manninum hafi verið það ljóst. Héraðsdómur Suðurlands taldi að konan hafi ekki verið mótfallin framangreindum atburðum þegar þeir gerðust. Var það mat byggt á framburði konunnar og mannsins en við aðalmeðferð málsins kom fram í máli konunnar að henni leið ekki illa á meðan, en hins vegar leið henni illa eftir á og grét. Var þess getið í dómnum að hjá þeim báðum kom fram að um gagnkvæma snertingu hefði verið að ræða. Þá tók Héraðsdómur Suðurlands fram að ekki hafi komið fram fyrir dómi að konan hafi á neinn hátt, hvorki með látbragði né orðum, gefið manninum það til kynna að hún væri þessu mótfallin eða að hún vildi ekki að hann gerði þetta. Það var því álit dómsins að að gegn neitun mannsins sé ekki hafið yfir skynsamlegan vafa að hann hafi haft ásetning til að brjóta gegn konunni með athöfnum sínum. Þegar kom að því að meta hvort maðurinn hefði sært blygðunarsemi konunnar með því að liggja nakinn í rúminu undir sæng með henni taldi dómurinn að sú háttsemi ein og sér að liggja nakinn undir eigin sæng á eigin heimili ekki geta almennt falið í sér brot gegn blygðunarsemi konunnar. Það var talið óumdeilt að maðurinn hefði legið nakinn uppi í rúmi undir sæng eins og lýst var í ákærunni. Á hinn bóginn var ekki lýst í ákærunni að maðurinn hafi svo risið upp úr rúminu og við það hafi konan séð hann beran. Í framburði konunnar kom hins vegar fram að það hafi sært blygðunarsemi hennar þegar maðurinn reis úr rúminu og hún sá hann beran. Héraðsdómur Suðurlands tók fram að það hefði ekki verið tekið fram í ákærunni og því var hann sýknaður af sakargiftum eins og þær voru bornar upp í ákærunni, það er að hafa legið nakinn uppi í rúmi undir sæng með konunni.
Mest lesið Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Innlent „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Innlent „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Innlent Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Innlent Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Innlent „Margt óráðið í minni framtíð“ Innlent Fleiri fréttir Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Ein í framboði og áfram formaður Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Sprenging í vændi og handboltafár eftir sigur á Svíum Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Handtekinn grunaður um íkveikju „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Loðna fundist á stóru svæði Sjá meira