Shakespeare segist ekki hafa stungið Ranieri í bakið Anton Ingi Leifsson skrifar 12. apríl 2017 14:30 Félagarnir á góðri stundu. vísir/getty
Craig Shakespeare, stjóri Leicester, segir að hann og fyrrum stjóri Leicester, Claudio Ranieri, hafi aldrei rifist á sínum starfsferli saman, en Shakespeare var aðstoðarmaður Ranieri. Ranieri var rekinn frá ensku meisturunum í febrúar, en hann sagði í viðtali á dögunum að einhver innan félagsins hafi verið að vinna gegn honum og átt þátt í því að hann væri rekinn. Ítalinn nefndi engan á nafn, en einhverjir beindu spjótum sínum að fyrrum aðstoðarmanni hans og núverandi stjóra Leicester, Shakespeare. Hann segir að svo hafi ekki verið. „Við rifumst aldrei eða það voru aldrei nein illindi myndi okkar," sagði Shakespeare, en hann undirbýr liðið nú fyrir leik gegn Atletico Madrid í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. „Allir hafa rétt sinn á að tala. Ég sé ekki vandamálið við það, en ég hef hreina samvisku." Shakespeare, sem sá ekki viðtalið í beinni útsendingu við Ranieri, segir að hann hafi talað við Ranieri daginn sem hann var rekinn og segir samstarf þeirra hafa verið gott. „Claudio var í góðu skapi, hann kom alveg eins og ég þekkti hann. Mín afstaða hefur verið eins frá fyrsta viðtali sem stjóri þegar ég sagði ég hafi talað við Claudio þetta kvöld." „Hann þakkaði mér og ég þakkaði honum. Hann sagði að þetta væri fótbolti. Það var gott að sjá hann njóta fótboltans og hann gerði mjög vel," sagði Shakespeare að lokum. Leikur Leicester og Atletico hefst klukan 18.45 í kvöld, en upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 18.30. Fyrri leikurinn fer fram á Spáni.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Íslenski boltinn Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Íslenski boltinn „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Íslenski boltinn Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Fótbolti Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Enski boltinn Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Formúla 1 Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Íslenski boltinn Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Sjá meira
Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Íslenski boltinn
Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Íslenski boltinn