Reykjanesbær dæmdur til að greiða 3 milljónir vegna skemmda á Þórsvagninum Birgir Olgeirsson skrifar 10. apríl 2017 15:12 Þórsvagninn var hafður til sýnis í Reykjanesbæ. vísir/gva
Reykjanesbær þarf að greiða Víkingahringnum ehf. 3,2 milljónir króna vegna skemmda á styttunni Þórsvagninum. Árið 2011 óskaði Reykjanesbær eftir því að fá styttuna lánaða til sýnis á Ljósanæturhátíð sem haldin er síðsumars á hverju ári í sveitarfélaginu. Listaverkið er eftir Hauk L. Halldórsson og Sverri Örn Sigurjónsson en það sýnir Þór í vagni sínum dregnum af tveimur höfrum. Styttunni var komið fyrir á áberandi hæð í Reykjanesbæ skammt frá Reykjanesbæ. Í maí árið 2012 var Árni Sigfússon, þáverandi bæjarstjóri Reykjanesbæjar, upplýstur um að skemmdir hefðu verið unnar á styttunni með sprengingu. Í kjölfarið áttu sér stað tölvupóstsamskipti um að færa styttuna til viðgerðar. Héraðsdómur Reykjaness mat það svo að Reykjanesbær bæri hlutlæga ábyrgð á tjóni á Þórsvagninum meðan verkið var í hans umsjá. Enn fremur var litið til þess að í tölvupósti 21. maí árið 2012 lofaði Árni Sigfússon að Reykjanesbær myndi greiða viðgerðina. Var það loforð án nokkurs fyrirvara um viðgerðarkostnað.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira