Ástarþríhyrningurinn og glæpurinn sem Indverjar gleyma aldrei Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 15. maí 2017 11:45 Málið vakti mikla athygli á Indlandi á sínum tíma en hér eru aðalpersónurnar á forsíðu eins stærsta dagblaðs Indlands, Nanavati-hjónin og Prem Ahuja.
Það var mollulegur dagur í einu fínasta hverfi Bombay, nú Mumbai, á Indlandi þann 27. apríl 1959 þegar Kawas Maneckshaw Nanavati fór inn í svefnherbergi hjá Prem Ahuja og skaut hann til bana. Morðið skók indverskt samfélag og réttarhöldin voru söguleg fyrir þær sakir að þau voru þau seinustu á Indlandi þar sem kviðdómur kom við sögu.Fjallað er um morðið á vef BBC í dag. Nanavati var virtur flotaforingi í indverska hernum og giftur enskri konu, Sylviu Nanavati. Ahuja var viðskiptajöfur og elskhugi Sylviu og lét lífið vegna þess.Kviðdómur sýknaði Nanavati Nanavati hafði tekið byssuna sem hann skaut Ahuja með úr skipi sínu. Þegar hann hafði myrt elskhuga konu sinnar fór flotaforinginn beint á lögreglustöðina og játaði morðið. Hann var samstundis handtekinn en þann 23. september 1959 komst kviðdómur að þeirri niðurstöðu að Nanavati væri saklaus. Almenningur fylgdist vel með réttarhöldunum og naut flotaforinginn mikillar hylli. Þannig féllu konur í yfirlið við það eitt að sjá Nanavati þegar hann mætti í réttinn í fullum skrúða og í fylgd nánast heillar herdeildar. Stuðningsmenn Nanavati hrópuðu einnig ókvæðisorðum að vitnum saksóknarans sem ákærði og sótti flotaforingjann til saka. Fjöldi fólks kom saman á götum Bombay meðan á réttarhöldunum stóð og þurfti stundum að kalla út óeirðalögregluna.Nanavati-hjónin.Öfugsnúin niðurstaða þar sem öll sönnunargögn bentu til sektar Nanavati Bæði verjendur Nanavati og fjölmiðlar höfðu mikil áhrif á það hvaða skoðun almenningur hafði á málinu. Þannig var flotaforinginn málaður upp sem mikill föðurlandsvinur enda í hernum, mánuði í senn úti á sjó þar sem hann skildi konuna sína eftir heima „einmana og berskjaldaða.“ Verjendur Nanavati sögðu síðan að viðskiptajöfurinn Ahuja hefði hvorki þjóðernis- né siðferðiskennd. Þannig væri það ekki aðeins siðlaust að eiga í ástarsambandi við eiginkonu flotaforingja heldur væri hann nánast að ráðast á land og þjóð með þeim gjörðum sínum. Kviðdómurinn gaf enga skýringu á því hvers vegna Nanavati var fundinn saklaus. Dómarinn í málinu sagði niðurstöðu kviðdómsins vera öfugsnúna þar sem öll sönnunargögn bentu til sektar Nanavati. Hæstiréttur Bombay komst svo að þeirri niðurstöðu í mars 1960 að Nanavati væri sekur um morðið á Ahuja og dæmdi hann í ævilangt fangelsi. Aðeins fjórum klukkutímum síðar frestaði ríkisstjórinn í Bombay refsingu Nanavati eða allt þar til að Hæstiréttur Indlands hefði tekið málið hans fyrir.Náðaður eftir aðeins þrjú ár í fangelsi Í september 1960 úrskurðaði Hæstiréttur svo að ríkisstjórinn hefði farið út fyrir valdsvið sitt með því að fresta refsingunni og tók hún þá gildi. Nanavati hóf þá afplánun dómsins. Þremur árum síðar var Nanavati svo veitt reynslulausn af heilsufarsástæðum og í mars 1964 var hann svo nokkuð óvænt náðaður af ríkisstjóranum í Maharashtra. Fjórum árum síðar flutti flotaforinginn fyrrverandi svo ásamt Sylviu eiginkonu sinni og þremur börnum til Kanada þar sem hann lést árið 2003. Morðið á Ahuja vakti mikla athygli á sínum tíma og heldur í raun áfram að vekja athygli þar sem um það hafa verið skrifaðar fjölmargar bækur, ritgerðir auk þess sem fjöldi Bollywood-mynda hafa verið gerðar um málið.Nánar má lesa um það á vef BBC.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Fleiri fréttir Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Sjá meira