Alonso mun ekki vinna á Renault bíl 2018 Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 23. maí 2017 20:00 Fernando Alonso fagnar heimsmeistaratitlinum 2005 í Renault litunum. Vísir/Getty
Fernando Alonso, ökumaður McLaren liðsins í Formúlu 1 og nú Indy 500 vill aka bíl sem getur unnið keppnir á næsta ári. Renault liðið segir að bíll þess muni fyrst vera sigursæll árið 2020. Alsono og Renault leiddu saman hesta sína í Formúlu 1. Alonso varð heimsmeistari ökumanna á Renault bíl árin 2005 og 2006 og batt þar með enda á einokun Michael Schumacher á titlinum. Orðrómur er á kreiki um að Alonso hafi nú þegar leitað á náðir sinna fyrri félaga hjá franska framleiðandanum um mögulegt sæti á næsta ári. Ekkert hefur verið staðfest um það. Alonso hefur lýst því yfir að hann vilji vera í bíl sem getur unnið keppnir strax á næsta ári. Hann hefur þurft að sætta sig við skarðan hlut sem ökumaður McLaren-Honda undanfarin tvö ár. Lítið virðist ætla að breytast til batnaðar hjá gamla risanum í ár. Alain Prost, sérstakur ráðgjafi Renault og fyrrum heimsmeistari í Formúlu 1 segir að ólíklegt sé að Renault bíllinn verði meðal fremstu bíla fyrr en árið 2020. Það væri því líklega ekki rétt fyrir Alonso að fara þangað ef hann vill vinna strax á næsta ári. Alonso mun ekki taka þátt í Mónakó kappakstrinum um komandi helgi en hann hefur verið í Bandaríkjunum undanfarið að undirbúa þátttöku í Indy 500, þar sem hann mun keppa á sunnudaginn, sama dag og kappaksturinn fer fram í Mónakó. Sæti hans hjá McLaren tekur kempan Jenson Button.
Formúla Tengdar fréttir Alonso fórnar Mónakó kappakstrinum fyrir Indy 500 Fernando Alonso, ökumaður McLaren-Honda liðsins í Formúlu 1 mun taka þátt í Indy 500 kappakstrinum í ár. Alonso mun því ekki taka þátt í Mónakó kappakstrinum. 12. apríl 2017 14:00 Toto Wolff hefur enduruppgötvað ást sína á Formúlu 1 Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes segir að baráttan á milli Mercedes og Ferrari í ár hafi endur vakið ást hans á Formúlu 1. 22. maí 2017 22:30 Brown: Button er mjög spenntur fyrir Mónakó Zak Brown, framkvæmdastjóri Mclaren liðsins segir ekkert til í athugasemdum Mark Webber um að Jenson Button taki Mónakó kappkasturinn ekki alvarlega. 21. maí 2017 19:30 Button tekur sæti Alonso í Mónakó Fernando Alonso kom öllum á óvart í vikunni þegar hann tilkynnti að hann myndi sleppa Mónakó kappakstrinum í ár til að taka þátt í Indy 500 kappakstrinum. 14. apríl 2017 17:00 Mest lesið West Ham áfram eftir spennutrylli og sigur í vítaspyrnukeppni Enski boltinn HM-leikir í Boston í uppnámi Fótbolti Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn Verstappen tikkar af golulistanum Formúla 1 Truflaður af Aroni Pálmars i viðtali Sport Emin enn ósigraður á sínum atvinnumannaferli Sport „Við byrjum seinni hálfleikinn gjörsamlega á hælunum“ Sport Skaut fast til baka á Xavi: „Sömu leikmenn eru núna að vinna“ Fótbolti Þrjú lið geta orðið deildarmeistarar | ÍR-ingar eygja enn von Handbolti Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Fótbolti Fleiri fréttir Verstappen tikkar af golulistanum Hamilton bjartsýnn á að Ferrari geti orðið meistari Komst hjá hörðum árekstri með ótrúlegum viðbrögðum Mercedes á toppnum en Ferrari fullt eftirsjár Russell á ráspól en Verstappen klessti út í kant Týndi sjálfum sér: „Sérð þessa manneskju ekki aftur“ Keppnir í hættu vegna stríðsins Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Hamilton bjartsýnn: „DNA-ið mitt er í þessum bíl“ „Stormur í vatnsglasi“ Lewis Hamilton finnst skemmtilegra að keyra nýja F1-bílinn Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Sjá meira
Alonso fórnar Mónakó kappakstrinum fyrir Indy 500 Fernando Alonso, ökumaður McLaren-Honda liðsins í Formúlu 1 mun taka þátt í Indy 500 kappakstrinum í ár. Alonso mun því ekki taka þátt í Mónakó kappakstrinum. 12. apríl 2017 14:00
Toto Wolff hefur enduruppgötvað ást sína á Formúlu 1 Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes segir að baráttan á milli Mercedes og Ferrari í ár hafi endur vakið ást hans á Formúlu 1. 22. maí 2017 22:30
Brown: Button er mjög spenntur fyrir Mónakó Zak Brown, framkvæmdastjóri Mclaren liðsins segir ekkert til í athugasemdum Mark Webber um að Jenson Button taki Mónakó kappkasturinn ekki alvarlega. 21. maí 2017 19:30
Button tekur sæti Alonso í Mónakó Fernando Alonso kom öllum á óvart í vikunni þegar hann tilkynnti að hann myndi sleppa Mónakó kappakstrinum í ár til að taka þátt í Indy 500 kappakstrinum. 14. apríl 2017 17:00