Tæpar tvær milljónir fengust upp í rúmlega 100 milljóna gjaldþrot JÖR ehf. Birgir Olgeirsson skrifar 23. maí 2017 12:58 Guðmundur Jörundsson, stofnandi Jör. Vísir/Daníel
Skiptum á einkahlutafélaginu JÖR ehf. er lokið, en félagið var stofnað utan um hönnun á fatalínu Jörn og verslunarrekstur við Laugaveg 89. Tæpar tvær milljónir fengust upp í rúmlega hundrað milljóna króna gjaldþrot félagsins. Félagið var tekið til gjaldþrotaskipta 11. janúar síðastliðinn en skiptum lauk 9. maí síðastliðinn. Lýstar veðkröfur námu 65,3 milljónum króna. Upp í þær fengust greiddar 1,6 milljónir króna. Skiptastjóri hafnaði lýstri veðkröfu að fjárhæð 46 milljónum króna, og varð því sú krafa að almennri kröfu að sögn skiptastjóra, sem gerði það að verkum að lýstar veðkröfur urðu í heildina 19,2 milljónir króna. Lýstar forgangskröfur námu 13,9 milljónum króna en ekkert fékkst greitt upp í þær. Lýstar almennar kröfur námu 24,5 milljónum króna og fékkst ekkert greitt upp í þær. Skiptakostnaður greiddist að hluta með eignum búsins. Félagið var rekið með 25 milljóna króna tapi árið 2015 og var eigið fé þess þá neikvætt um rétt tæpar 53 milljónir króna. Það var stofnað árið 2012 af Guðmundi Jörundssyni og Gunnari Erni Petersen. Guðmundur sagði í samtali við Fréttablaðið í lok nóvember að fyrirtækið væri í endurskipulagningu og komið á ákveðinn byrjunarreit. Ný verslun Jör var í kjölfarið opnuð á horni Týsgötu og Skólavörðustígs.
Mest lesið Greiðsluáskorun Samstarf „Eitt sinn var ég ekki svo lánsöm að tilheyra stóru vinkonusamfélagi“ Atvinnulíf Loka verslun Útilífs í Smáralind Viðskipti innlent Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Viðskipti innlent Birgir til Banana Viðskipti innlent Nálgast samkomulag um TikTok Viðskipti erlent Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Viðskipti innlent Afbókaði dýra ferð þremur dögum fyrir brottför og fær endurgreitt Neytendur Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Neytendur Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ Sjá meira