Leigurisarnir tveir eiga íbúðir fyrir 79 milljarða Haraldur Guðmundsson skrifar 7. júní 2017 05:00 Heildarstærð íslenska leigumarkaðarins er um 29.000 íbúðir. Vísir/Anton Brink
Almenna leigufélagið, sem á um 1.300 íbúðir, metur fasteignasafn sitt á um 38 milljarða. Íbúðir Heimavalla eru metnar á um 41 milljarð en frekari kaup á fasteignum á þessu ári, til viðbótar við þær 2.020 sem þetta stærsta leigufélag landsins á, gætu aukið virði eignasafnsins í 50 milljarða. Samkvæmt nýbirtum ársreikningi Almenna leigufélagsins, sem er í eigu sjóðs í stýringu hjá Gamma, voru íbúðir þess metnar á 29,8 milljarða í árslok 2016. Í lok mars samþykkti Samkeppniseftirlitið svo kaup félagsins á BK eignum ehf. og runnu þá 360 fasteignir í eignasafnið til viðbótar. „Við höfum engin plön um að stækka félagið enda er það í þægilegri stærð varðandi endurfjármögnun og skráningu á markað,“ segir María Björk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Almenna leigufélagsins. Heimavellir leigja út, eða hafa í byggingu, um 2.020 íbúðir. Horft er til að íbúðum þess á höfuðborgarsvæðinu fjölgi um 400 á næstu tveimur árum. Félagið var rekið með 2.061 milljónar króna hagnaði í fyrra og átti fasteignir upp á 40,7 milljarða. Samkvæmt upplýsingum blaðsins er stefnt að frekari stækkun eignasafnsins þannig að það muni við lok árs nema nær 50 milljörðum. Stækkun Heimavalla hefur líkt og hjá Almenna leigufélaginu byggt að miklu leyti á sameiningu við önnur leigufélög og kaupum á eignum af Íbúðalánasjóði. Áður en Almenna leigufélagið keypti BK eignir hafði það sameinast Leigufélaginu Kletti sem Íbúðalánasjóður seldi í fyrra og eignaðist þá þær 450 íbúðir sem í Kletti voru. Bæði leigufélögin eiga fasteignir á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Heimavellir keyptu í fyrra leigufélagið Ásabyggð á Ásbrú í Reykjanesbæ og bættu þá við sig 716 íbúðum í Keflavík.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Greiðsluáskorun Samstarf Loka verslun Útilífs í Smáralind Viðskipti innlent „Eitt sinn var ég ekki svo lánsöm að tilheyra stóru vinkonusamfélagi“ Atvinnulíf Birgir til Banana Viðskipti innlent Afbókaði dýra ferð þremur dögum fyrir brottför og fær endurgreitt Neytendur Nálgast samkomulag um TikTok Viðskipti erlent Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Viðskipti innlent Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Viðskipti innlent Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Neytendur Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ Sjá meira