32 ár síðan ensku liðin voru sett í bann | Þessi félög misstu af leikjum í Evrópukeppni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júní 2017 15:15 Michel Platini og Ian Rush spiluðu báðir leikinn og eru hér 20 árum síðar. Vísir/Getty
Í dag eru 32 ár síðan að ensku liðin voru sett í bann í Evrópukeppnum félagsliða vegna framkomu stuðningsmanna Liverpool í úrslitaleik Evrópukeppni meistaraliða sem fram fór á Heysel-leikvanginum í Brussel. 39 létust í Heysel-slysinu, flestir Ítalir og stuðningsmenn Juventus sem höfðu flúið stuðningsmenn Liverpool. Leikurinn var samt látinn fara fram og þar vann Juventus Evrópukeppni meistaraliða í fyrsta sinn í sögu félagsins. Michel Platini skoraði sigurmarkið úr umdeildri vítaspyrnu. UEFA sagði stuðningsmenn Liverpool bera ábyrgð á því hvernig fór og fjórum dögum eftir slysið voru öll ensku liðin útlokuð frá þátttöku í Evrópukeppnum. Bannið stóð til 1990 fyrir utan að Liverpool var eitt ár lengur í banni. England tapaði líka sætum vegna árangurstengdra ástæðna og enska deildin fékk því mun færri sæti í Evrópukeppninni þegar banninu var loksins létt. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir ensku félögin sem misstu af sæti í Evrópukeppninni vegna bannsins frá 1985 til 1990.1985-86 Evrópukeppni meistaraliða: Everton Evrópukeppni bikarliða: Manchester United Evrópukeppni félagsliða: Liverpool, Tottenham, Southampton og Norwich.1986-87 Evrópukeppni meistaraliða: Liverpool Evrópukeppni bikarliða: Everton Evrópukeppni félagsliða: West Ham, Manchester United, Sheffield Wednesday og Oxford.1987-88 Evrópukeppni meistaraliða: Everton Evrópukeppni bikarliða: Coventry Evrópukeppni félagsliða: Liverpool, Tottenham, Arsenal og Norwich.1988-89 Evrópukeppni meistaraliða: Liverpool Evrópukeppni bikarliða: Wimbledon Evrópukeppni félagsliða: Manchester United, Nottingham Forest, Everton og Luton.1989-90 Evrópukeppni meistaraliða: Arsenal Evrópukeppni bikarliða: Liverpool Evrópukeppni félagsliða: Nottingham Forest, Norwich, Derby og Tottenham
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Hljóp maraþonhlaup á hverjum degi í heilt ár Sport Enn óvíst að stuðningsmenn Íslands fái HM-treyjur: „Afskaplega leitt“ Handbolti „Ég var að sinna hlutum sem eru mikilvægari en körfubolti“ Körfubolti Sveinn kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Arnars Freys Handbolti Þjálfari sló niður ungan línuvörð en sleppur við fangelsi Enski boltinn Járnkona sundsins kveður Sport Æskuheimili Steve Kerr brann til kaldra kola Körfubolti Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 31-31 | Góð fyrirheit fyrir HM Handbolti „Megum ekki við fleiri meiðslum í bili“ Sport Everton endaði furðulegan dag á því að fara áfram í bikarnum Enski boltinn Fleiri fréttir Moyes hefur rætt við Everton Þjálfari sló niður ungan línuvörð en sleppur við fangelsi Everton endaði furðulegan dag á því að fara áfram í bikarnum Farnir að orða Mourinho við Everton starfið Everton rak Sean Dyche aðeins nokkrum klukkutímum fyrir leik Liverpool vill fá Kimmich Rooney bað Coleen á bensínstöð Sjáðu sigurmark Bergvall gegn Liverpool Maguire tvisvar tekinn fyrir hraðakstur á þremur dögum Hljóp beint í fang systur sinnar eftir að hafa haldið hreinu gegn Liverpool Gerði grín að gagnrýni Arteta á boltann Van Dijk: Átti augljóslega að vera hans annað gula spjald Slapp við annað gula spjaldið og var hetja Tottenahm stuttu síðar AC Milan og Dortmund sögð hafa áhuga á að fá Rashford Rekinn frá West Ham og Potter að taka við Ronaldo hvetur Al-Nassr til að kaupa Casemiro Rosický gæti snúið aftur til Arsenal Sjáðu mörk Newcastle gegn Arsenal „Jafnvel Salah væri í vandræðum hjá Tottenham“ Kennir boltanum um slaka færanýtingu Arsenal Man United goðsögnin mjög ósátt: Hafa ekki gert neitt jákvætt Newcastle með manninn sem Arsenal vantar Kaupir ný gleraugu á öryggisvörðinn og fær styttra leikbann Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Chelsea vill fá Guehi aftur Segir að Forest fari í titilbaráttu með sigri á Liverpool Son framlengir við Spurs West Ham búið að bjóða Potter starfið Segir fótboltaguðina á móti Luton Milan og Juventus ásælast framherja United Sjá meira