Meiri samdráttur en búist var við Kristinn Ingi Jónsson skrifar 7. júlí 2017 09:30 Hagar reka meðal annars verslanir Bónus. Vísir/Eyþór
Meiri samdráttur varð í sölu í verslunum smásölurisans Haga í júnímánuði en fjárfestar bjuggust við. Afkomuviðvörunin, sem félagið sendi frá sér á fimmtudagskvöld, kom þeim í opna skjöldu, en til marks um það lækkuðu hlutabréf félagsins um 4,26 prósent í 672 milljóna króna viðskiptum í gær. Gengi hlutabréfa í Högum hefur fallið um tæp 28 prósent frá því að Costco opnaði undir lok maí. Tæpir sextán milljarðar af markaðsvirði félagsins hafa þurrkast út á þessum tíma. Gengi hlutabréfanna stóð í 39,35 krónum á hlut þegar markaðir lokuðu í gær og hefur ekki verið lægra frá því í ágúst árið 2014. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur eitthvað verið um að fjárfestar hafi skortselt hlutabréf í Högum á undanförnum vikum og átt þannig þátt í lækkun hlutabréfaverðsins. Fram kom í afkomuviðvörun Haga að sala í verslunum félagsins hefði dregist saman um 8,5 prósent í krónum talið í júnímánuði miðað við sama tímabil í fyrra að teknu tilliti til aflagðrar starfsemi. Þá minnkaði framlegð samstæðunnar um 0,4 prósentustig á milli ára. Arnar I. Jónsson, greinandi í hagfræðideild Landsbankans, segir sölusamdráttinn ekki hafa komið á óvart. Hins vegar hafi hann verið heldur meiri en búist hafi verið við. Það hafi sést á viðbrögðum markaðarins í gær. „Það á enn eftir að koma í ljós hver langtímaáhrifin verða. Við lítum svo á að mesti skellurinn hafi verið í júnímánuði og mögulega á þessum ársfjórðungi en að þetta jafnist síðan út, ef svo má segja. Það á eftir að koma betur í ljós hver viðbrögð Haga verða við þessu breytta samkeppnisumhverfi,“ segir hann.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Afbókaði dýra ferð þremur dögum fyrir brottför og fær endurgreitt Neytendur „Eitt sinn var ég ekki svo lánsöm að tilheyra stóru vinkonusamfélagi“ Atvinnulíf Loka verslun Útilífs í Smáralind Viðskipti innlent Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Viðskipti innlent Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Viðskipti innlent Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Viðskipti innlent Nálgast samkomulag um TikTok Viðskipti erlent Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Neytendur Birgir til Banana Viðskipti innlent Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Viðskipti innlent Fleiri fréttir Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ Sjá meira