Íslendingar við að gefast upp á sumrinu Jakob Bjarnar skrifar 3. júlí 2017 14:59 Staðan er sú að Íslendingar margir hverjir hafa gefist upp á hinu íslenska sumri og vilja út í sólina.
Nú þegar dag er tekið að stytta og einn þriðji sumarsins að baki er staðan sú að Íslendingar margir hverjir hafa gefist upp á hinu íslenska sumri. Forsvarsmenn ferðaskrifstofa finna fyrir mikilli ásókn í sólarlandaferðir þegar rignir marga daga í röð. Þetta kom fram í hádegisfréttum Bylgjunnar nú um helgina. Veðurspá er ekki kræsileg fyrir næstu daga, rok og rigning í kortunum og sækja Íslendingar nú í auknum mæli í sólarlandaferðir. Framleiðslustjóri ferðaskrifstofunnar Vita segir fólk hringja og vilja helst fara strax eftir hádegi. Meiri ásókn er í sólina nú en í fyrra. Helsta ástæðan fyrir aukinni aðsókn núna miðað við í fyrra er EM í fótbolta sem dró margan manninn til Frakklands til að fylgjast með ævintýrum íslenska landsliðsins.Krít, Tenerife og aðrir áfangastaðir á Spáni eru vinsælir hjá Vita. Framkvæmdastjóri Heimsferða finnur einnig fyrir meiri eftirspurn. Hann segir að þegar fólk hafi verið í rigningartíð í þrjá fjóra daga og spáin ekki góð komi yfir hann holskefla. Hann hafi sannarlega fundið fyrir því undanfarna daga. Aukningin sé mikil í sumar og enn meiri í haust. Forsvarsmenn ferðavefsins Dohop segja að bókanir í gistingu erlendis hafi aukist um fimmtíu prósent sé miðað við í fyrra sem bendir ótvírætt til þess að ferðalög séu mjög að færast í aukana meðal landsmanna. Ekki ætti neinn að þurfa að velkjast í vafa um að ástæðan er sú að fólk telur sig búa við aukinn kaupmátt auk þess sem mikil styrking íslensku krónunnar spilar þar stórt hlutverk.
Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira