Innlent

Guð­mundur Ari nýr vara­for­maður Sam­fylkingar

Smári Jökull Jónsson skrifar
Guðmundur Ari Sigurjónsson er nýr varaformaður Samfylkingarinnar.
Guðmundur Ari Sigurjónsson er nýr varaformaður Samfylkingarinnar. Vísir/Einar

Þingmaðurinn Guðmundur Ari Sigurjónsson var í dag sjálfkjörinn í embætti varaformanns Samfylkingarinnar á flokksþingi flokksins í Suðurnesjabæ. Hann tekur við embættinu af Guðmundi Árna Stefánssyni sem tilkynnti afsögn eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.

Guðmundur Ari hefur verið þingmaður Samfylkingarinnar síðan árið 2024 og er núverandi þingflokksformaður en hann hafði áður setið í bæjarstjórn Seltjarnarness. Hann bauð sig fram til formanns árið 2016 en beið þá lægri hlut gegn Oddnýju Harðardóttur.

Guðmundur Árni Stefánsson hafði gegnt embætti varaformanns frá árinu 2022 en tilkynnti í beinni útsendingu eftir sveitarstjórnarkosningarnar í maí að hann myndi hugsa sinn gang en hann var oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Í kjölfarið greindi hann frá því að hann myndi hætta sem varaformaður.

Guðmundur Ari tilkynnti framboð sitt til embættis varaformanns um miðjan september. Enginn bauð sig fram gegn Guðmundi Ara og var hann því sjálfkjörinn í embættið.

Flokksstjórnarfundurinn stendur enn yfir en honum lýkur um klukkan 17:25 eftir almennar umræður og samþykkt stjórnmálaályktunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×