Erlent

R. Kelly gefið að sök að heilaþvo hóp kvenna

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
R Kelly er gefið að sök að heilaþvo hóp kvenna.
R Kelly er gefið að sök að heilaþvo hóp kvenna. Vísir/getty

Söngvarinn Robert Sylvester Kelly, betur þekktur undir nafninu R. Kelly er gefið að sök að hafa heilaþvegið hóp kvenna og beitt þær harðræði og ofbeldi. Foreldrar kvennanna sem dvelja hjá söngvaranum lýsa þessu sem eins konar sértrúarsöfnuði. Sex konur búa með Kelly en hann er sagður banna þeim að vera í samskiptum við fjölskyldu og vini.



Þrjár konur, Cheryl Mack, Kitty Jones og Asante McGee, fyrrum vinkonur söngvarans, hafa stigið fram með alvarlegar ásakanir á hendur söngvaranum. Jim DeRogatis hjá BuzzFeedNews hefur rannsakað þetta mál um langa hríð og fylgt málinu eftir. Fréttaveitan greindi fyrst frá þessu.



Fyrrum vinkonur söngvarans lýsa honum sem sjúklega stjórnsömum einstaklingi. Hann stjórni konunum að öllu leyti, ráði hvernig þær klæða sig, hvernig þær haga sér, hvenær þær fá að baða sig og sofa.



Ein kvennanna, Cheryl Mack, lýsir aðstæðum fyrir DeRogatis:

„Þú þarft að biðja um að fá mat. Þú þarft að biðja um leyfi til að fá að nota klósettið.“

Hún segir R. Kelly hafa einstakt lag á að stjórna hugsunum og vilja fólks.



„Hann er strengjabrúðumeistari,“ segir Mack. Hún segir að Kelly virðist ljúfasta manneskja í heimi en í raun sé hann djöfullinn.



Kelly er meðal annars sagður hafa beitt konurnar stafrænu kynferðisofbeldi þar sem hann hann hafi tekið upp myndefni sem sýnir hann stunda kynmök með konunum. Í kjölfarið hafi hann sýnt karlkyns vinum sínum myndefnið.

Kallar sambýliskonur sínar börnin sín og heimtar að þær kalli sig pabba.Vísir/Getty

Heimtar að vera kallaður „pabbi“

Kelly er gefið að sök að hafa gert farsíma kvennanna upptæka og krafist þess að þær kalli sig „pabba.“ Hann er sagður tala um konurnar sem börnin sín. Konurnar hafi þá þurft að biðja um leyfi til að yfirgefa herbergi sín í híbýlum Kellys í Chicago og Atlanta.



Ein þeirra sem hefur stigið fram með ásakanir á hendur Kelly er Kitti Jones sem segir hann hafa lamið sig. Jones segir að Kelly hafi, í afbrýðisemiskasti, hent henni upp að tré og haldið henni þar gegn vilja sínum fyrir að hafa verið of vingjarnleg við starfsmann skyndibitastaðarins Subway.



Móðir konunnar segir dóttur sína vera fanga

Móðir ungrar konu sem dvelur enn hjá Kelly sagði DeRogatis hjá Buzzfeed frá því þegar hún síðast sá dóttur sína. Það var í árslok 2016. „Það var sem hún væri heilaþvegin. Hún leit út eins og fangi – þetta var algjörlega hræðilegt. Ég faðmaði hana að mér og huggaði en hún sagði mér í sífellu að hún sé ástfangin og að Kelly væri sá eini sem þætti vænt um sig.“



Eftir að hafa farið í fáeinar „góðlátlegar“ heimsóknir að heimili söngvarans segist lögreglan í Illinois og Georgíufylki ekki hafa fundið neitt saknæmt í fyrirkomulagi heimilanna. Ein þeirra sem býr hjá söngvaranum sagði lögreglunni að það væri í fínu lagi með sig og gerði lítið úr áhyggjum foreldra sinna. Umrædd stúlka sækist eftir því að verða söngkona og leitaði þess vegna til Kelly.



Lokuð inni í rútu í þrjá sólarhringa en Kelly neitar allri sök

Asante McGee segir að ein táningsstelpnanna væri yfir sig ástfangin af Kelly þrátt fyrir að hann beitti hana harðræði. Á tónleikaferðalagi söngvarans er honum gefið að sök að hafa lokað hana inni í rútunni í þrjá sólarhringa fyrir að hafa ekki „lært heima“ og er það þess vegna sem hann hafi orðið að refsa henni og bannað henni að stíga út úr rútunni. Athygli vekur að unga stúlkan var nýútskrifuð úr náminu sínu og þurfti þess vegna ekki að læra heima.



Kelly vísar þessum ásökunum á bug og talar um sjálfan sig í þriðju persónu þegar hann bregst við frásögnum kvennanna: „Mér er spurn hvers vegna fólk þrjóskast við í ófrægingarherferð í garð listamanns sem elskar aðdáendur sína, vinnur allan sólarhringinn og sér um fólkið í lífi sínu.“

R. Kelly neitar sök.Vísir/Getty

Ásakanir um kynferðisofbeldi lengi loðað við söngvarann

Þrátt fyrir að Kelly hafi aldrei verið sakfelldur fyrir kynferðislegt ofbeldi hafa nokkrar konur, yfir margra ára skeið, stigið fram og sakað hann um að hafa brotið á sér. Honum hefur auk þess verið gefið að sök að hafa tekið upp myndband af sér að stunda kynmök með stúlkum undir lögaldri.



Kelly, sem varð fimmtugur í janúar, er R&B tónlistarmaður sem hefur unnið til fjölda verðlauna. Hann hefur hlotið Grammy verðlaunin, Bandarísku tónlistarverðlaunin, BETverðlaunin og Billboard tónlistarverðlaunin svo fátt eitt sé nefnt. Hann er hvað þekktastur fyrir lögin Ignition og I Believe I Can Fly.



DeRogatis, blaðamaður BuzzFeed lýkur greininni um Kelly með því að tala um tónlistariðnað sem sé alræmdur fyrir ýmiss konar misbeitingu á valdi. Margar stjörnur noti yfirburði sína og aðstöðumun til að komast yfir ungar stelpur sem leiti til stjarnanna á faglegum forsendum. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×