Kynþáttahatari á AirBnB sektaður fyrir að neita að hýsa asískan gest Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. júlí 2017 23:30 Dyne Suh setti myndband á Youtube þar sem hún sagði frá því sem gerst hafði með bókun hennar á AirBnB.
AirBnB-gestgjafi sem mismunaði asískum gesti á grundvelli þess að hann væri frá Asíu hefur verið sektaður um 5.000 dollara og sagt að fara á námskeið í asísk-amerískum fræðum. Tami Barker afbókaði Dyne Suh og sendi henni í kjölfarið eftirfarandi skilaboð: „Eitt orð segir allt. Asísk.“ Að því er fram kemur á vef BBC var sektin lögð á Barker á grundvelli nýs samkomulags á milli AirBnB og Kaliforníuríkis sem snýr að jöfnu aðgengi allra að húsnæði. Þá þykja rannsóknir gefa til kynna að sumir eigi erfiðara með að bóka herbergi eða íbúðir í gegnum AirBnB vegna kynþáttar síns. Barker sendi Suh skilaboð í gegnum AirBnB-appið rétt áður en hún átti að koma í húsið í apríl síðastliðnum. Í einum þeirra sagði hún að hún myndi ekki leigja Suh þó að hún væri síðasta manneskjan á jörðinni. Í öðrum skilaboðum sagði hún: „Ég mun ekki leyfa útlendingum að skipa þessari þjóð fyrir. Þess vegna erum við með Trump.“ Eftir að Barker hafði afbókað Suh setti Suh inn tilfinningaþrungið myndband á Youtube. „Það særir mig að eftir að hafa búið í Bandaríkjunum í 23 ár, þá gerist þetta. Það skiptir engu máli hversu vel ég kem fram við aðra, ef þú ert asísk þá ertu annars flokks manneskja. Fólk getur komið fram við þig eins og rusl.“ Lögmaður Barker sagði að hún sæi eftir hegðun sinni og kvaðst telja að eitthvað jákvætt gæti komið út úr refsingu hennar.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira