Innlent

Sjö þúsund krónur séu ekki nóg

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
María Rut er þingmaður Viðreisnar.
María Rut er þingmaður Viðreisnar. Vísir/Anton Brink

María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir fyrirhugaða breytingu á afsláttarkerfinu Loftbrú ekki duga nóg. Hún hafi miklar áhyggjur af stöðu innanlandsflugsins.

„Innanlandsflugið er lífæð landsbyggðar og tryggir aðgengi að nauðsynlegri þjónustu við fólk. Flugið er öryggismál og jafnréttismál til að jafna aðstöðumun milli íbúa sem annars búa til okkar góða samfélag. Loftbrúin hefur verið mikilvægur liður í því að tryggja nauðsynlegt aðgengi,“ skrifar María í færslu á Facebook.

Breytingarnar, sem greint var frá í gær, felast í því að í stað þess að íbúar með lögheimili fyrir utan stórhöfuðborgarsvæðið fái fjörutíu prósenta afslátt af fluglegg innanlands fái þeir sjö þúsund krónur fyrir hvern legg. Þessi útfærsla hefur sætt gagnrýni.

Þrátt fyrir að María sé í ríkisstjórnarflokki tekur hún undir þessa gagnrýni og segir að sjö þúsund krónur séu einfaldlega ekki nóg. Einnig hafi hún heyrt að gjaldskrá flugfélaganna hafi einungis hækkað eftir að Loftbrúin var sett á laggirnar og missi því úrræðið marks.

Núna þurfi hún og aðrir þingmenn að leggja við hlustir og tala fyrir því að útfærslan verði endurskoðuð.

„Ég hef áhyggjur af stöðu innanlandsflugsins. Það var bagalegt hvernig útboðið í fyrra fór. Þar var skortur á samkeppni á markaðnum ákveðin orsök og nú blasir við fækkun flugferða sem er ekkert annað en skerðing á frelsi og lífsgæðum íbúa sem þurfa gjarnan að sækja vinnu eða þjónustu til höfuðborgarsvæðisins,“ skrifar hún.

„Það er alveg ljóst í mínum huga að það þarf að endurskoða þetta fyrirkomulag.“

Þar með tekur hún undir orð Ingvars Þóroddssonar, samflokksmanns hennar, sem sagði hið sama í viðtali við mbl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×