Ný Evrópureglugerð mun litlu breyta Kristinn Ingi Jónsson skrifar 10. júlí 2017 06:00 Lítið er um skortölu á íslenskum verðbréfamarkaði, en það sem stendur henni aðallega fyrir þrifum er skortur á lánsbréfum. Lífeyrissjóðir mega ekki lána slík bréf og verðbréfasjóðum er sniðinn þröngur stakkur. vísir/stefán
Ekki er líklegt að ný reglugerð Evrópusambandsins um skortsölu, sem tók gildi um mánaðamótin, muni auka umsvif skortsöluviðskipta hér á landi, enda er lífeyrissjóðum eftir sem áður óheimilt að lána bréf til slíkra viðskipta. Þetta er mat þeirra sérfræðinga á fjármálamarkaði sem Fréttablaðið ræddi við. Þeir telja brýnt að auka heimildir stofnanafjárfesta, svo sem lífeyris- og verðbréfasjóða, til þess að lána verðbréf.Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnarvísir/gvaSkortsala gengur þannig fyrir sig að fjárfestir fær lánuð verðbréf sem hann selur í kjölfarið. Hann kaupir síðan bréfin aftur í þeirri von að þau hafi lækkað í verði að lánstíma liðnum. Sá sem skortselur bréf veðjar með öðrum orðum á að gengi þeirra lækki. Lítið er um skortsöluviðskipti á innlendum verðbréfamarkaði, en það sem hefur aðallega staðið skortsölu fyrir þrifum er að fáir eru tilbúnir til þess að lána bréf í slík viðskipti. Lífeyrissjóðir, sem eiga stóran hluta skráðra verðbréfa hér á landi, mega það einfaldlega ekki og verðbréfasjóðum er sniðinn þröngur stakkur í þessum efnum. Evrópsku skortsölureglugerðinni er ætlað að treysta umgjörð skortsöluviðskipta og auka jafnframt gagnsæi um slík viðskipti. Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, segir jákvætt að sama umgjörð gildi nú um skortsölu hér á landi og annars staðar í Evrópu. Innleiðing reglugerðarinnar sé mikilvægt skref, en hins vegar þurfi að grípa til frekari aðgerða til þess að auka umsvif skortsölu til jafns við það sem gengur og gerist annars staðar í Evrópu. „Ég held að þátttaka stofnanafjárfesta eins og lífeyrissjóða og verðbréfasjóða sé grunnforsenda þess að við fáum svipaða virkni skortsölu og æskilegt væri. Við lítum á það sem mikla fjárfestavernd að slíkur möguleiki sé fyrir hendi. Að staða þeirra fjárfesta sem telja bréf of hátt verðlögð og þeirra sem telja þau of lágt verðlögð verði sem jöfnust,“ segir hann. Jóhann Gísli Jóhannesson, sjóðsstjóri hjá GAMMA, segir líklegra að reglugerðin muni fremur draga úr áhuga fjárfesta á að skortselja bréf en að auka hann. Reglugerðin hafi í för með sér aukið skrifræði og frekari tilkynningarskyldur.Jóhann Gísli Jóhannesson, sjóðsstjóri hjá GAMMAÞannig þarf, svo dæmi sé tekið, að tilkynna Fjármálaeftirlitinu um skortstöðu í bréfum félags þegar hún fer yfir 0,2 prósent af útgefnu hlutafé félagsins. Því til viðbótar þarf að láta stofnunina vita í hvert sinn sem skortstaðan eykst um 0,1 prósent umfram umrædd 0,2 prósenta mörk. Þá þarf fjárfestir að birta opinbera tilkynningu þegar nettó skortstaða hans í ákveðnu félagi fer yfir 0,5 prósent af útgefnu hlutafé félagsins. Jóhann Gísli segir líklegt að fjárfestar muni reyna að forðast að fara yfir umrædd mörk, þannig að ekki verði opinbert hvaða bréf þeir eru að skortselja. „Þetta er mjög grunnur markaður. Ef það liggur opinberlega fyrir að ákveðinn fjárfestir er að skortselja bréf, þá væri alveg hægt að ýta honum út úr þeim stöðum með því að byrja að kaupa bréf og sýna eftirspurn. Hann gæti þá neyðst til að loka stöðunum sínum. Þannig að þessi tilkynningarskylda gæti skapað óeðlilega hvata á markaði.“ Hann tekur undir með Páli að betra hefði verið að stíga frekari skref og auka til dæmis heimildir stofnanafjárfesta til þess að lána bréf. „Þannig væri hægt að auka framboð af lánsbréfum sem er alla jafna mjög lítið. Það er oft erfitt, ef ekki ómögulegt, að komast í slík bréf,“ segir hann. Virkur skortsölumarkaður gæti dregið úr öfgakenndum sveiflum á markaði og stuðlað að heilbrigðari verðlagningu á bréfum.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Afbókaði dýra ferð þremur dögum fyrir brottför og fær endurgreitt Neytendur „Eitt sinn var ég ekki svo lánsöm að tilheyra stóru vinkonusamfélagi“ Atvinnulíf Loka verslun Útilífs í Smáralind Viðskipti innlent Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Viðskipti innlent Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Viðskipti innlent Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Viðskipti innlent Nálgast samkomulag um TikTok Viðskipti erlent Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Neytendur Birgir til Banana Viðskipti innlent Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Viðskipti innlent Fleiri fréttir Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ Sjá meira