Stelpurnar okkar æfðu á Tjarnarhæðinni í Doetinchem í dag en þar mæta þær Sviss á morgun í öðrum leik liðsins á EM 2017 í fótbolta. Bæði lið eru án stiga eftir 1-0 tap í fyrsta leik.
Veðrið hefur verið meira og minna gott í Hollandi undanfarna daga og var því mikill hiti þegar stelpurnar æfðu í dag. Þær byrjuðu á léttum skokkhring áður en farið var í styrktaræfingar og svo í reitabolta. Eftir það var fjölmiðlum hent í burtu.
Allir leikmenn eru heilir og tóku þátt í æfingunni en afskaplega létta var yfir stelpunum okkar. Sara Björk Gunnarsdóttir mætti skellihlæjandi á æfinguna og þá var hart tekist í reitaboltanum en einnig mikið hlegið.
Myndasyrpu frá æfingunni á Tjarnarhæðinni má finna hér að neðna.
Ekki missa af neinu tengdu stelpunum okkar á EM 2017 í Hollandi. Íþróttadeild 365 er með öflugt teymi fréttamanna á mótinu og færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af íslenska liðinu. Fylgdu okkur á Facebook og Twitter.
Fyrirliðinn skellihló á Tjarnarhæðinni | Myndir
Tengdar fréttir
Stelpurnar héldu atkvæðagreiðslu og vildu allar eftirnöfnin á treyjurnar sínar
Svona erum við meira lið, segir Glódís Perla Viggósdóttir.
Svona var blaðamannafundurinn með Frey, Sif og Glódísi
Landsliðsþjálfarinn og miðverðirnir tveir sátu fyrir svörum á blaðamannafundi íslenska liðsins á Doetinchem.
Passalaus Sif kom ráðvilltum íslenskum blaðamanni til bjargar
Þetta kom svo sem ekki á óvart. Ég er í þannig buxum að þær bjóða upp á að missa eitthvað úr vösunum,“ segir Elvar Geir Magnússon.
Búinn að skila Elínu Mettu á Petersen
Tók pappaspjald af landsliðskonunni ófrjálsri hendi á miðvikudagskvöldið.
Freyr: Okkar hugarfar og okkar færni mun færa okkur sigur á morgun
Staðan á landsliðshópi Íslands er eins góð og mögulegt er segir landsliðsþjálfarinn.