Salur forseta, drottninga og dansóðra Íslendinga endurnýjaður Heimir Már Pétursson skrifar 20. júlí 2017 20:00 Hinn 26. júní 1990 hélt Vigdís Finnbogadóttir engri annarri en Elísabetu annarri Englandsdrottningu veislu í Súlnasal.
Einn elsti og þekktasti veitingasalur landsins gengur nú í gegnum endurnýjun lífdaga og hefur nánast allt verið rifið innan úr honum. Þar hafa fjölmargir þjóðhöfðingjar komið til veislu, pólitísk örlög hafa ráðist þar og kynslóðum saman hafa Íslendingar stigið þar dans fram á rauða nótt. Stöð 2 rifjaði upp sögu salsins, líkt og sjá má í sjónvarpsfréttinni neðst í þessari frétt. Hótel Saga er fimmtíu og fimm ára um þessar mundir. En hótelið hóf starfsemi á þjóðhátíðardegi Frakka, Bastilludeginum, hinn 14. júlí árið 1962. Eins og sjá má standa yfir miklar framkvæmdir á frægasta veitingasal landsins, Súlnasalnum, sem fær nú andlitslyftingu. Saga Hótel Sögu og þar með Súlnasalarins er samofin sögu þjóðarinnar í rúma hálfa öld. Fyrir tónlistarfólk má geta þess að þar gistu meðlimir Led Zeppilin árið 1970 og það gerði jazzsöngkonan Ella Fitzgerald líka.Francois Mitterrand, þáverandi Frakklandsforseti, kom hingað til lands í ágúst 1990.Fyrir utan alla dansleikina hafa menn og konur mætt pólitískum örlögum sínum í Súlnasalnum. Þar viðurkenndi Árni Sigfússon sig og Sjálfstæðisflokkinn sigraðan þegar Reykjavíkurlistinn vann borgina í fyrsta sinn í maí 1994 og þar fór einnig fram frægur landsfundur Samfylkingarinnar þegar Árni Páll Árnason vann formannsembættið í kappi við Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur með aðeins eins atkvæðis mun árið 2015. Ingibjörg Ólafsdóttir hótelstjóri segir salinn verða tilbúinn fyrir jól. „Og nú erum við að breyta honum og eins og þú sérð kannski aðeins meira en að breyta honum. Við erum að endurnýja hann. En við erum að passa okkur ofboðslega vel á því að þessi sérkenni sem hafa einkennt salinn frá upphafi fái að halda sér og að stemmingin verði alltaf sú sama,“ segir Ingibjörg.Vigdís forseti í sérlegu uppáhaldi Nú má til dæmis sjá upp í hringlaga loft yfir gamla dansgólfinu þar sem eru gluggar sem áður voru skyggðir og ekki sást heldur í fyrir stórri ljóskrónu. Salurinn verður færður nær uppruna sínum eins og arkitektinn Halldór Jónsson hannaði hann og þegar framkvæmdum lýkur rétt fyrir jól lofar hótelstjórinn áframhaldandi gleði í Súlnasal. „Við erum búin að taka niður gamla sviðið sem var hérna. En við ætlum að setja annað svið og það verður áfram upphækkun á dansgólfinu og það verður tjúttað hér upp um alla veggi,“ segir hótelstýran glöð í bragði. Fjölmörgum þjóðhöfðingjum hefur verið haldin veisla í Súlnasal þar sem mikið var um að vera sumarið 1990. Hinn 26. júní það ár hélt Vigdís Finnbogadóttir engri annarri en Elísabetu annarri Englandsdrottningu veislu í salnum en hún var fyrsta drottning eða konungur Bretlands sem kom til Íslands. Í lok ágúst sama ár kom Francois Mitterrand Frakklandsforseti síðan í heimsókn og var haldin veisla í Súlnasalnum. En frægt er að Vigdís og hann héldu síðan þaðan á rokktónleika með Sykurmolunum í Duus Húsi. „Og við viljum einmitt gjarnan koma tölu á það sem hefur verið hérna. Og Vigdís var alveg sérlega elskuleg að halda veislurnar sínar hér hjá okkur. Okkur þykir alveg ofboðslega vænt um hana. Auðvitað hina líka en ofsalega vænt um Vigdísi,“ segir Ingibjörg Ólafsdóttir.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira