Ágústspá Siggu Kling - Vogin: Smáatriði geta farið fara rosalega í taugarnar á þér 4. ágúst 2017 09:00
Elsku Vogin mín, ef þú skoðar vogina þá er hún mælitæki, mælir jafn vel erfiðar tilfinningar og góðar tilfinningar og þér er það svo í sjálfsvald sett að hafa góðu tilfinningarnar miklu stærri en þær erfiðu. Þú ræður svo sannarlega hvað þú vilt gróðursetja í huga þínum, hvort sem það eru orð og jafnvægi. Þú hefur alla burði til að vera svo mikil fyrirmynd og forystusauður að það er fyndið, en samt er það ríkt í þér að láta skap og tilfinningar (neikvæðar) stoppa þig í þessu dásamlega ferðalagi sem er fram undan. Í orkuhjúp þínum geturðu látið smáatriði fara svo rosalega í taugarnar á þér að þær henda þér fram af fjallinu og verða að stórum snjóbolta. Þetta skapar dramatískt líf, en þú átt það til að kalla á það til þess að geta farið í boxhanskana. Þetta er það eina sem getur stoppað þig á þessum ofboðslega beina vegi sem blasir við. Þegar þú verður pirruð, farðu þá út að hlaupa, farðu í bað, farðu í sund, gerðu allt sem róar þig, því þær eru mjög fljótar að eyðast í orkunni þinni þessar neikvæðu tilfinningar. Þú ert fædd hér á jörðinni til að vera kennari, það muntu sjá þegar líða tekur á lífið þitt, en núna ertu að fara inn í diskótímabil. Það verður mikil ljósadýrð, partý og gleði. Þú ert að bíða eftir mikilvægum skilaboðum sem eiga eftir að hjálpa þér til að ná sigri yfir kvíðanum þínum og þér finnst eitthvað tengt þessum skilaboðum eða jafnvel fleiri skilaboðum eða útkomum hafa verið aðeins of lengi á leiðinni. Eitthvað af þessu gæti verið komið til þín, en svo sannarlega munu næstu mánuðir gefa þér svör. Ekki verður allt af þessu þó nákvæmlega eins og þú hefðir skrifað það, en samt hárrétt útkoma til þess að þú fáir það sem þú vilt. Alheimurinn veit stundum betur en maður sjálfur. Þar sem þú lítur alltaf svo dásamlega töff út, geturðu veitt til þín hvern sem þú vilt í ástinni, en að veiða og sleppa á ekki að vera takmarkið fyrir þig, krúttið mitt. Setningin þín: Ég er of sexý fyrir heiminn (I‘m to sexy for my love - Reginaldo Marques Santo)Frægir í Voginni: Kári Árnason landsliðsmaður, Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur, Hjalti flugþjónn, Ingi í Sign, Jón Axel Ólafsson athafnamaður, Matt Damon leikari, Íris Berg, fatahönnuðurinn minn, Mary Poppins, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og sjónvarpskona, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Lilja Dögg Alfreðsdóttir alþingiskona, Ósk Gunnarsdóttir útvarpskona, María Einarsdóttir ritari stjörnuspánnar, Arnþrúður Karlsdóttir útvarp Saga, Skúli Mogensen, Hulda Hólmkelsdóttir fréttakona, Walter Matthau, Olavia Newton John, Ragga Gísla, Steinn Steinarr, Margret Thatcher, Ragnheiður Elín Árnadóttir, minn meistari.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Menning Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Robert Wilson er látinn Gary Busey játar kynferðisbrot Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Einar og Milla eignuðust dreng Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Góðhjartaður dýrahirðir og tæknigúrú Draumabrúðkaup í sextíu ára gömlum kjól frá ömmu Tugþúsundir vottuðu Ozzy virðingu Kokkarnir á Strikinu með stjörnur í augunum þegar Bon Jovi mætti Síðasta Þjóðhátíðin í bili hjá FM95BLÖ Spámenn bjóða betur en veðurfræðingar Ætlar í pásu frá giggum Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Sjóðheitt og splunkunýtt Hollywood par Katrín Edda selur í Hlíðunum Þriggja ára snáði stal senunni í messu í Fljótshlíð Fyrstu tónleikar Purrksins í fjörutíu ár Sweeney sökuð um kynþáttahyggju Sögulegur klæðnaður á dreglinum Sjá meira