Ronaldo dæmdur í fimm leikja bann Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. ágúst 2017 13:51 Ronaldo ýtir við De Burgo Bengoetxa. vísir/getty
Cristiano Ronaldo hefur verið dæmdur í fimm leikja bann fyrir að ýta við dómara í 1-3 sigri Real Madrid á Barcelona í spænska Ofurbikarnum í gær. Ronaldo byrjaði leikinn á bekknum en kom inn á sem varamaður á 58. mínútu. Þegar 10 mínútur voru til leiksloka kom hann Real Madrid yfir með fallegu marki. Ronaldo reif úr treyjunni og fékk fyrir það gula spjaldið hjá De Burgo Bengoetxa, dómara leiksins. Á 82. mínútu féll Ronaldo í vítateig Barcelona eftir baráttu við Samuel Umtiti. Bengoetxa gaf Portúgalanum gula spjaldið fyrir leikaraskap og því var þátttöku hans í leiknum lokið. Ronaldo var ekki par sáttur við þessa niðurstöðu og ýtti í bakið á Bengoetxa. Ronaldo fékk eins leiks bann fyrir rauða spjaldið og svo fjóra leiki í viðbót fyrir að ýta við Bengoetxa. Ronaldo missir af seinni leik Real Madrid og Barcelona á miðvikudaginn og fjórum fyrstu leikjum Madrídarliðsins í spænsku úrvalsdeildinni. Þeir eru gegn Deportivo La Coruna (úti), Valencia (heima), Levante (heima) og Real Sociedad (úti).Ronaldo sýndi heimsbyggðinni magavöðvana og fékk fyrir það gult spjald.vísir/gettyRonaldo féll í vítateig Barcelona eftir viðskipti við Samuel Umtiti ...vísir/getty... og fékk annað gula spjaldið sitt og þar með rautt fyrir leikaraskap.vísir/getty
Spænski boltinn Tengdar fréttir Ronaldo skoraði og var rekinn út af í sigri á Barcelona Cristiano Ronaldo kom mikið við sögu þegar Real Madrid vann 1-3 sigur á Barcelona á Nývangi í fyrri leik liðanna um spænska Ofurbikarinn í kvöld. 13. ágúst 2017 22:05 Zidane framlengir hjá Real Madrid Zinedine Zidane skrifaði í gær undir nýjan þriggja ára samning hjá spænska stórveldinu Real Madrid en hann hefur stýrt liðinu undanfarna 18 mánuði. 13. ágúst 2017 06:00 Mest lesið Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Fótbolti Neitaði að stökkva í skíðastökki: „Ég hugsaði um kærustuna mína“ Sport Glósublað Rosenior og meira fíaskó: „Fáránlegur leikþáttur“ Fótbolti Sjáðu bombuna sem Gummi Ben missti sig yfir og fyrsta rauða á ferlinum Fótbolti „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Íslenski boltinn Bein útsending: Arnar velur vesturfara Fótbolti Hótar að mæta aldrei aftur eftir „sorglega gagnrýni“ Sport „Það er gott að ná að taka einn titil frá þeim“ Sport Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Handbolti „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Fótbolti Fleiri fréttir Bein útsending: Arnar velur vesturfara Glósublað Rosenior og meira fíaskó: „Fáránlegur leikþáttur“ Farsinn framlengist: Senegal áfrýjar til Alþjóðadómstólsins Sjáðu bombuna sem Gummi Ben missti sig yfir og fyrsta rauða á ferlinum Ísland spilar í Tókýó í sumar „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Segir að Anfield sé orðinn einn auðveldasti staðurinn til að spila á Vill verða varamaður Kane á HM í sumar „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Marokkó er Afríkumeistari í fótbolta Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City PSG sendi Chelsea-menn skömmustulega út úr Meistaradeildinni Stórbrotið mark Eze og Arsenal örugglega áfram Norska ævintýrið endaði með martröð í Portúgal Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn FIFA neitar að færa HM-leiki Írans til Mexíkó Gamli Valsarinn valinn í danska landsliðið Isak sást á æfingu Liverpool Guðrún ætlar að slást við Fanneyju og Thelmu um titilinn Þurfa á fullkomnu kvöldi að halda Kemur alltaf í Þór Íranar reyna að færa leikina til Mexíkó Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Sjáðu Albert í essinu sínu þrátt fyrir innbrotið Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Liðsfélagi Sveindísar spilaði sinn fyrsta leik eftir hjartastoppið „Dyrnar eru alltaf opnar fyrir Messi“ „Fyrirgefðu mamma“ Sjá meira
Ronaldo skoraði og var rekinn út af í sigri á Barcelona Cristiano Ronaldo kom mikið við sögu þegar Real Madrid vann 1-3 sigur á Barcelona á Nývangi í fyrri leik liðanna um spænska Ofurbikarinn í kvöld. 13. ágúst 2017 22:05
Zidane framlengir hjá Real Madrid Zinedine Zidane skrifaði í gær undir nýjan þriggja ára samning hjá spænska stórveldinu Real Madrid en hann hefur stýrt liðinu undanfarna 18 mánuði. 13. ágúst 2017 06:00