Fólki vísað frá setningarathöfn Bókmenntahátíðar fyrir misskilning Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 7. september 2017 11:18 Athöfnin var haldin í ráðhúsinu í gær. Vísir/
Þeir sem hugðust sækja setningarathöfn Bókmenntahátíðarinnar í Reykjavík sem fram fór í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær, en voru án boðsmiða, var vísað frá. Framkvæmdastjóri hátíðarinnar segir að ástæðan sé miskilningur, allir séu velkomnir á viðburði Bókmenntahátíðarinnar. Rithöfundurinn Dagur Hjartarson vakti athygli málinu á Facebook í gær, þar sem hann sagði að sér þætti málið leiðinlegt. Á vefsíðu hátíðarinnar segir að ókeypis sé inn á viðburði og þeim öllum opnir. Í tilkynningu frá Bókmenntahátíðinni segir að aðstandendum hátíðarinnar þyki afar leitt að gestum hafi verið vísað frá ráðhúsinu í gær. „Skýringin er misskilningur milli hátíðar og húsráðenda – athöfnin átti svo sannarlega að vera opin öllum, líkt og undanfarin ár, og ekki stóð til að framvísa þyrfti boðskorti,“ segir í tilkynningunni. Í samtali við Vísi segir Stella Soffía Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, nú sé verið að reyna að komast til botns í því hvernig miskilningurinn hafi orðið til að byrja með. Hún ítrekar að skipuleggjendum hátíðarinnar þyki leitt að gestum hafi verið vísað frá og þetta muni ekki koma fyrir aftur. „Það stendur ekki til að þetta verði svona aftur. Það verður komið í veg fyrir að þetta endurtaki sig og þetta hefur aldrei verið svona, segir Stella Soffía. Bókmenntahátíðin var sem fyrr segir sett í gær og stendur hún yfir fram á sunnudag. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast hér en fjöldi erlendra sem innlendra höfunda tekur þátt.
Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Segja upp tveimur sérfræðingum Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Þúsundir barna bíða mánuðum saman „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Hjólreiðamaður slasaðist en reiðhjólið í lagi Efnaleki á Óseyri og fólk beðið um að halda sig fjarri Quang Lé frjáls sinna ferða „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla fiski úr sjókvíaeldi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Sjá meira