Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Árni Sæberg skrifar 23. september 2026 14:16 Súrálsskipinu var lagt að bryggju við Straumsvík. Vísir/Sigurjón Lögregla hóf eftirlit með einum ákærðu í Straumsvíkurmálinu svokallaða eftir að hann kom hingað til lands með tvo kafarabúninga og tvær svokallaðar neðansjávarvespur í bíl sínum.
Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði Héraðsdóms Reykjaness frá 17. september síðastliðnum. Úrskurður Landsréttar, sem staðfestir úrskurð héraðsdóms, var kveðinn upp daginn eftir en birtur í dag. Daginn sem maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14. október næstkomandi var ákæra gefin út á hendur honum, auk átta annarra. Mennirnir eru ýmist ákærðir fyrir innflutning á 106 kílóum kókaíns með súrálsskipi, hlutdeild í því broti eða tilraun til fíkniefnalagabrots, með því að taka á móti efnunum. Grunaði að sníkjudýrsaðferðinni yrði beitt Í úrskurðinum segir að Héraðssaksóknari lýsi atvikum málsins sem svo að lögregla hafi haft til rannsóknar stórfellt fíkniefnabrot mannsins og samverkamanna hans. Í byrjun sumars hafi hann komið til landsins með [afmáð en ætla má að um ferjuna Norrænu sé að ræða]. Í bíl hans hafi verið tvö sett af köfunargöllum og búnaði ásamt tveimur neðansjávarvespum. Hér má sjá mann nota svokallaða neðansjávarvespu við köfun. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.Justin Lewis/Getty „Grunaði lögreglu að búnaðurinn yrði notaður til að nálgast fíkniefnasendingu þar sem fikniefni eru falin í sjókistum eða utanáliggjandi hirslum á skipum. Hóf lögregla eftirlit með aðilanum. Einhverju síðar komu erlendir sakborningar málsins til landsins. Lögregla fylgdist með er þeir skipulögðu, undirbjuggu og sóttu hin haldlögðu efni. Í kjölfarið var hluti af hinum haldlögðu efnum afhentur öðrum sakborningum málsins. Af rannsóknargögnum málsins verður ráðið að varnaraðili hafi átt þátt í stórfelldu fíkniefnalagabroti.“ Kannaðist ekkert við efnin Þá segir að skýrsla hafi verið tekin af manninum þann 26. júní síðastliðinn. Hann hafi sagst ekkert vita um nein fíkniefni og vilja bíða og sjá sannanir gegn sér. „Kvaðst hann hafa blandast með röngu fólki og farið á rangan stað með röngu fólki. Kvað hann [afmáð] hafa verið að vinna með sér. Aðspurður hvers vegna hann hafi komið með honum að kafa kvað hann þá hafa komið eins og ferðamenn en kvaðst ekki þekkja hann persónulega.“ Aftur hafi verið tekin skýrsla af manninum þann 5. júlí síðastliðinn. Hann hafi þá neitað að tjá sig varðandi atriði sem tengdust smyglinu og hlutverkum annarra sakborninga í umræddu smygli.
Straumsvíkurmálið Fíkniefnabrot Lögreglumál Smygl Hafnarfjörður Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Fleiri fréttir Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Sjá meira