Kröfu Gamma ehf. vísað frá í Hæstarétti Kristinn Ingi Jónsson skrifar 1. september 2017 07:00 Valdimar Ármann, forstjóri Gamma Capital Management. Vísir/Stefán
Hæstiréttur staðfesti á mánudag niðurstöðu héraðsdóms sem vísaði frá fyrr í sumar kröfu fasteignafélagsins Gamma ehf. um að fjármálafyrirtækinu Gamma Capital Mangement yrði bannað að nota heitið GAMMA í fasteignaviðskiptum. Var það niðurstaða dómsins að Gamma ehf. hefði ekki lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn um kröfuna. Fasteignafélagið krafðist þess að Gamma Capital Management yrði meinað að nota heitið GAMMA í atvinnustarfsemi sinni þegar kæmi að umsjón með íbúðarhúsnæði, leigu þess og öðrum fasteignaviðskiptum. Héraðsdómur taldi ekki sannað að Gamma Capital Management hefði notað vörumerkið til slíkra viðskipta. Kom meðal annars fram í dómnum að krafa Gamma ehf. hefði ekki verið rökstudd með því að hitt félagið hefði notað heitið í atvinnustarfsemi eða hygðist gera það. Sjóður í rekstri Gamma Capital Management á Almenna leigufélagið, annað stærsta leigufélag landsins á almennum markaði, en Gamma ehf. á og leigir út fasteignir í miðbæ Reykjavíkur. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.Leiðrétting: Í upphaflegri frétt var ranglega sagt til um eignarhaldið á Almenna leigufélaginu. Rétt er að félagið er í eigu sjóðs í rekstri Gamma Capital Management. Beðist er velvirðingar á þessu.
Mest lesið Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Neytendur Play sé ekki að fara á hausinn Viðskipti innlent Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Viðskipti innlent Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Viðskipti innlent Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Neytendur Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Viðskipti innlent „Er nú rétt að jafna mig á slæmu Wham! blæti“ Atvinnulíf Fær endurgreiðslu þar sem sjónvarpið í herberginu virkaði ekki Neytendur Sýnishornið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim Neytendur Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ „Óhóflegt gjald“ fyrir símanotkun í Bretlandi heyri fljótt sögunni til Elín Tinna nýr framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi Heiðrún Lind kaupir í Sýn Ráðin forstöðukona markaðsmála hjá Olís Eldri stjórnendur sætti sig oftar við slæma hegðun og frammistöðu Sjá meira