Skúli í Subway til rannsóknar hjá saksóknara Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 15. september 2017 06:00 Skúli Gunnar Sigfússon, athafnamaður og eigandi Subwaykeðjunnar vísir/gva
Viðskiptagjörningar Skúla Gunnars Sigfússonar, sem oft er kenndur við Subway, eru til rannsóknar hjá Héraðssaksóknara. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari en vill ekki segja til um hvert inntak rannsóknarinnar er eða hvar hún er á vegi stödd. „Ég hef fengið það staðfest hjá embætti Héraðssaksóknara að sakamálarannsókn sé hafin og málinu hafi verið úthlutað til tveggja starfsmanna embættisins til rannsóknar,“ segir Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður og skiptastjóri EK1923 (áður Eggert Kristjánsson heildverslun hf.). Sveinn kærði Skúla og fleiri til Héraðssaksóknara vegna meintrar margháttaðrar refsiverðrar háttsemi í fjórum kærum fyrr á þessu ári. Meint brot Skúla varða meðal annars við refsiákvæði gjaldþrotalaga og ákvæði almennra hegningarlaga um fjársvik og skjalafals. Hin meintu brot varða gjörninga milli EK1923 annars vegar og Sjöstjörnunnar ehf. og Stjörnunnar ehf. hins vegar. Skúli er fyrrverandi eigandi og stjórnarmaður EK en síðari félögin tvö eru bæði í 100 prósent eigu Skúla. „Ég vísa þessu gjörsamlega á bug. Þetta er algjörlega tilhæfulaust og tíminn mun leiða það í ljós,“ segir Skúli, inntur eftir viðbrögðum.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira