Kröfur í málmbræðslu nema 3,6 milljörðum Haraldur Guðmundsson skrifar 12. september 2017 06:00 GMR hóf rekstur á Grundartanga árið 2013. vísir/eyþór
Kröfur í þrotabú málmbræðslu GMR á Grundartanga nema 3,6 milljörðum króna og á Landsbankinn þar af rúma tvo milljarða undir. Skiptastjóri búsins hefur reynt að selja verksmiðjuna síðan í vor og hafa bæði innlendir og erlendir fjárfestar sýnt henni áhuga. „Ég er að reyna að selja verksmiðjuna og fyrr en það gerist mun skiptum ekki ljúka. Það hafa nokkrir aðilar sýnt henni áhuga, bæði íslenskur hópur fjárfesta, sem reyndar gerði tilboð í vor en því var hafnað enda þótti það of lágt. Síðan hef ég átt símafundi með bæði amerísku fyrirtæki og öðru evrópsku sem er staðsett í Bretlandi. Að lokum hefur eigandi fyrirtækis sem er staðsett í Sviss og er í stálviðskiptum kynnt sér hana,“ segir Marteinn Másson, lögmaður og skiptastjóri þrotabúsins. GMR Endurvinnslan hóf rekstur á Grundartanga árið 2013 en var lýst gjaldþrota í lok janúar. Fyrirtækið endurvann brotamálma, meðal annars stál sem féll til við rekstur álvera hér á landi. Verksmiðjan, áhöld hennar og tæki voru í árslok 2014 metin á 2,2 milljarða króna, samkvæmt nýjasta ársreikningi GMR sem er í evrum, miðað við þáverandi gengi. Lán frá Landsbankanum námu þá 2,6 milljörðum króna. Samkvæmt lánasamningum við ríkisbankann voru hvorki greiddir vextir né afborganir árið 2015 og áttu fyrstu greiðslur að hefjast í júní í fyrra. Almennar kröfur í búið nema 290 milljónum króna. Þar af á íslenska ríkið átta milljóna kröfu vegna fjárfestingarsamnings sem það gerði við GMR árið 2012. ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, komst að þeirri niðurstöðu, sem EFTA-dómstóllinn staðfesti síðar, að samningurinn hefði falið í sér ólögmæta ríkisaðstoð. Ekki var búið að endurheimta hana þegar verksmiðjan fór í þrot, en Marteinn segir ólíklegt að almennar kröfur í búið fáist greiddar. Á þeim þremur árum sem málmbræðslan var rekin skráði Umhverfisstofnun á þriðja tug frávika frá starfsleyfi fyrirtækisins. Sætti það auknu eftirliti vegna ítrekaðra vanefnda við að koma mengunarvörnum í viðunandi horf og fyrir að geyma spilliefni óvarin á lóðinni. „Umhverfisstofnun var með ákveðnar kröfur og þær verða teknar upp þegar og ef nýr rekstraraðili kemur. Ég er með starfsmann fyrir þrotabúið sem er að vinna á svæðinu og vaktar verksmiðjuna og heldur tækjabúnaði í lagi. Hann hefur verið að taka til á svæðinu. Við höfum einnig látið flytja inn í húsið spilliefni sem voru á lóðinni,“ segir skiptastjórinn. Eyþór Arnalds, fjárfestir og fyrrverandi oddviti Sjálfstæðismanna í Árborg, var í eigendahópi GMR í árslok 2014 og stjórnarformaður félagsins þangað til í apríl í fyrra. Þá voru einnig í hluthafahópnum félög í eigu þeirra Stefáns Arnars Þórissonar, fyrrverandi stjórnarmanns GMR, og Arthurs Garðars Guðmundssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Loka á rafmagn til GMR endurvinnslu á Grundartanga Óvissa ríkir um áframhaldandi rekstur fyrirtækisins 9. janúar 2017 12:19 Málmbræðslan GMR gjaldþrota: Sautján manns missa vinnuna Fyrirtækið GMR Endurvinnslan ehf. á Grundartanga var tekið til gjaldþrotaskipta í Héraðsdómi Vesturlands í gær. 1. febrúar 2017 09:30 Málmbræðsla þarf fjármagn og skuldar raforkureikninga Óvissa ríkir um rekstur GMR Endurvinnslu á Grundartanga. Eigendurnir leita að fjárfestum en fyrirtækið sætir auknu eftirliti Umhverfisstofnunar. 27. janúar 2017 07:00 Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira
Loka á rafmagn til GMR endurvinnslu á Grundartanga Óvissa ríkir um áframhaldandi rekstur fyrirtækisins 9. janúar 2017 12:19
Málmbræðslan GMR gjaldþrota: Sautján manns missa vinnuna Fyrirtækið GMR Endurvinnslan ehf. á Grundartanga var tekið til gjaldþrotaskipta í Héraðsdómi Vesturlands í gær. 1. febrúar 2017 09:30
Málmbræðsla þarf fjármagn og skuldar raforkureikninga Óvissa ríkir um rekstur GMR Endurvinnslu á Grundartanga. Eigendurnir leita að fjárfestum en fyrirtækið sætir auknu eftirliti Umhverfisstofnunar. 27. janúar 2017 07:00