Stephany Mayor innsiglaði sigur Þór/KA á FH í gær en með honum tryggði Þór/KA sér Íslandsmeistaratitilinn í Pepsi-deild kvenna.
Stephany Mayor náði með þessu að skora á móti öllum níu liðum deildarinnar í einum rykk en hún skoraði í níu síðustu leikjum Þór/KA í sumar. Hún var alls með 19 mörk í 18 leikjum í Pepsi-deildinni.
Það þarf ekki að koma mikið á óvart að Stephany Mayor hafi verið valin besti leikmaður Pepsi-deildar kvenna í leikslok í gær.
Eina liðið sem hafði náð að halda hreinu á móti Stephany Mayor í síðustu fjórtán leikjum var einmitt lið FH í fyrri leiknum í Kaplakrika. Fyrir utan þann leik hafði hún skorað í öllum leikjum Þór/KA í deildinni frá 7. maí.
Þór/KA tók sér langan tíma í að brjóta ísinn á Þórsvelli í gær en mark Stephany Mayor kom fjórum mínútum eftir að Sandra María Jessen skoraði fyrra markið. Þær skoruðu báðar í síðustu þremur leikjum Þór/KA-liðsins í sumar
Það mátti samt búast við marki frá Stephany Mayor sem náði því að skora á öllum leikjum Þór/KA á Þórsvelli í sumar. Þór/KA spilaði tvo fyrstu leiki tímabilsins í Boganum og skoraði Stephany Mayor sigurmarkið í þeim fyrr sem var á móti Val.
Heimaleikurinn á móti Blikum í Boganum var eini heimaleikurinn þar sem hún var ekki á skotskónum en þá lagði hún upp sigurmarkið fyrir Huldu Ósk Jónsdóttur
Síðustu 9 leikir Stephany Mayor í Pepsi-deildinni í sumar:
1 mark á móti Val
2 mörk á móti Breiðabliki
2 mörk á móti Fylki
3 mörk á móti Haukum
1 mark á móti KR
1 mark á móti ÍBV
1 mark á móti Stjörnunni
1 mark á móti Grindavík
1 mark á móti FH
Borgarstjórinn skoraði í níu síðustu leikjum sumarsins
Tengdar fréttir
Spilaði í gegnum sársaukann í allt sumar og landaði titlinum
Þór/KA er sigursælasta lið Norðurlands eftir að 2-0 sigur á FH á heimavelli tryggði félaginu sinn annan Íslandsmeistaratitil í knattspyrnu kvenna.
Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - FH 2-0 | Íslandsmeistaratitillinn á loft á Akureyri
Þór/KA urðu Íslandsmeistarar í annað sinn með 2-0 sigri á FH á heimavelli.
Donni: Ólýsanleg tilfinning
Íslandsmeistaratitillinn fór á loft á Akureyri eftir 2-0 sigur Þórs/KA á FH í dag