Árnar sem renna í Jöklu eru til dæmis Kaldá, Fögruhlíðará og Laxá og í þeim má oft gera fína veiði þegar Jökla sjálf verður óveiðandi. Sem dæmi hefur oft verið fín sjóbleikjuveiði í ósum Fögruhlíðarár seint á tímabilinu og er það viðbót við laxinn sem gengur í hana og staðbundna urriðann sem heldur sig í hyljum hennar. Það sjást oft stórir laxar í Jöklu sjálfri og laxar um meter veiðast á svæðinu á hverju ári en í gærkvöldi veiddist klárlega stærsti lax sem veiðst hefur á svæðinu til þessa.
Veiðimaðurinn Guttormur Pálsson frá Egilsstöðum var veið veiðar í ánum og hafði 9 laxa upp úr krafsinu og gerði sér lítið fyrir og lauk veiði í kvöld með stærsta laxi í sögu Jöklusvæðisins. Laxinn veiddi hann í Laxá í veiðistaðnum Efri Brúarbreiða og mældist laxinn 107 sm langur og 53 sm í ummál. Laxinn fór í klakkistu eftir að hafa verið myndaður í bak og fyrir. Veiðinni lýkur á svæðinu næsta laugardag og veiðitölurnar úr Jöklu og Hliðarám stóðu í 332 löxum síðasta miðvikudag en nýjar tölur verða uppfærðar á heimasíðu Landssambands Veiðifélaga í kvöld.