Þorskverð hækkar en síldarverð lækkar Gissur Sigurðsson skrifar 18. október 2017 08:02 Þorskur eru veislukostur. Vísir/Stefán
Verð á óslægðum þorski á fiskmörkuðum hér innanlands hefur rokið upp að undanförnu eftir mikla lægð. Um síðustu áramót var verðið 290 krónur fyrir kílóið, en lækkaði jafnt og þétt úr því og fór lægst í 196 krónu í júlí. Síðan hefur það farið hækkandi og meðalverð í síðast mánuði var 291 króna fyrir kílóið, sem þýðir 48 prósenta hækkun frá því í júlí, eða hækkun um 95 krónur á kílóið. Frá þessu er greint á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda, en þar er ekki fjallað um skýringu á þessu. Þá eru stóru síldveiðiskipin, sem hafa verið að veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum djúpt austur af landinu og í færeysku lögsögunni, nú flest á landleið - þar sem stormur er brostinn á á miðunum. Nú er stormur á 12 spásvæðum af 17 umhverfis landið og sjósókn því almennt lítil. Skipin eru búin að veiða tæp fimmtíu þúsund tonn, eða um það bil helming af kvótanum í ár. Þann skugga ber á allgóða veiði að talsvert lægra verð fæst fyrir síldina nú en í fyrra. Það stafar meðal annars af því að eitthvað er til af birgðum erlendis frá vertíðinni í fyrra og að Rússar, sem voru stórir kaupendur, hafa ekkert keypt af síld héðan eftir að þeir settu innflutningsbann á íslenskarn sjávarafurðir, eftir að Íslendingar tóku þátt í viðskiptaþvingunum gagnvart Rússum vegna átakanna í Úkraínu.
Mest lesið Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Viðskipti innlent Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Neytendur „Er nú rétt að jafna mig á slæmu Wham! blæti“ Atvinnulíf Play sé ekki að fara á hausinn Viðskipti innlent Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Viðskipti innlent Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Neytendur Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Viðskipti innlent Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Viðskipti innlent Sýnishornið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim Neytendur Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ „Óhóflegt gjald“ fyrir símanotkun í Bretlandi heyri fljótt sögunni til Elín Tinna nýr framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi Heiðrún Lind kaupir í Sýn Ráðin forstöðukona markaðsmála hjá Olís Eldri stjórnendur sætti sig oftar við slæma hegðun og frammistöðu Sjá meira