Ferðamenn beðnir um að hafa varan á næsta sólarhringinn Birgir Olgeirsson skrifar 26. október 2017 14:21 Nær vindur stormstyrk á Vestfjörðum, Norðurlandi og Suðausturlandi með kvöldinu. Vísir/Friðrik Þór
Lægðardrag á Grænlandssundi mun dýpka í dag en á móti eflist víðáttumikill hæðarhryggur yfir Íslandi. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands en þar segir að þessi tvö veðurkerfi valdi því að það hvessir mjög á landinu af vestri og nær vindur stormstyrk á Vestfjörðum, Norðurlandi og Suðausturlandi með kvöldinu. Vindhviður geta orðið mjög öflugar, jafnvel náð 30 til 40 m/s við fjöll á þeim slóðum. Hitatölur verða þó með ágætum miðað við árstíma og úrkoma með minnsta móti. Ferðamenn eru beðnir að hafa varann á næsta sólarhring, því áfram verður hvassviðri eða stormur og víða rigning fyrir hádegi á morgun, þó dragi smám saman úr veðurhæð og vætu þegar líður á daginn. Á kosningadaginn er síðan spáð norðankalda með kólnandi veðri og éljum fyrir norðan og austan, en haustsól og mildara veður á Suður- og Vesturlandi. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: N og NV 8-13 m/s og dálítil él við NA-ströndina, en léttskýjað S- og V-til. Kólnandi veður. Á sunnudag: Hægviðri víðast hvar og léttskýjað um morguninn og hiti kringum frostmark, en SA 5-13 og Þykknar upp fyrst SV-lands síðdegis og hlýnar. Á mánudag: Hæg V-læg eða breytileg átt með dálítilli vætu af og til, en þurrt að mestu NA-lands. Hiti 3 til 9 stig, mildast V-til. Á þriðjudag: Útlit fyrir V-læga átt með vætu, en að snúist til N-lægrar áttar síðdegis, slyddu eða snjókomu og kólnandi veðri. Á miðvikudag: Líklega lægir, léttir víða til og frystir, en að hlýni aftur með SA-átt síðdegis.
Veður Mest lesið Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent „Árleg æfing í vonbrigðum“ Innlent Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Innlent Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Innlent Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Engar ruslatunnur í Grindavík Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Innlent Fleiri fréttir „Árleg æfing í vonbrigðum“ Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Frægasti köttur landsins týndur Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Engar ruslatunnur í Grindavík Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Sjá meira