Deila um sóttkví fer alla leið Árni Sæberg skrifar 26. október 2026 11:55 Maðurinn hefði getað stytt sóttkvína með því að gangast undir sýnatöku við komuna til landsins. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur fengið áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar í máli sínu á hendur íslenska ríkinu vegna sóttkvíar sem honum var gert að sæta í miðjum heimsfaraldri kórónuveiru. Maðurinn heldur því fram að hann hafi verið sviptur frelsi sínu með ólögmætum hætti og krefst tveggja milljóna króna í miskabætur. Ríkið hefur áður verið sýknað bæði í héraði og fyrir Landsrétti.
Í ákvörðun Hæstaréttar um áfrýjunarleyfisbeiðni mannsins segir að málið varði miskabótakröfu mannsins vegna stjórnvaldsákvörðunar sóttvarnalæknis frá 24. nóvember 2021, þar sem honum hafi verið gert að sæta sóttkví í 14 daga frá komu hans til landsins. Kröfuna hafi maðurinn reist á ákvæði stjórnarskrár um að engan megi svipta frelsi nema samkvæmt heimild í lögum. Vissi að hann hefði losnað fyrr gegn því að gefa sýni Vísir fjallaði um niðurstöðu Landsréttar á sínum tíma en rétturinn staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um sýknu ríkisins af öllum kröfum mannsins. Í dóminum segir að við komu til landsins hefði maðurinn ekki framvísað neinu þeirra vottorða sem tilgreind væru í reglugerð um sóttkví og einangrun og sóttvarnaráðstafanir á landamærum Íslands vegna COVID-19 faraldursins, en meðal þeirra væri viðurkennt vottorð um bólusetningu. Þá rakti Landsréttur að maðurinn hefði ekki farið eftir fyrirmælum reglugerðarinnar um að fara í PCR-sýnatöku við komu til landsins, en að fenginni neikvæðri niðurstöðu úr slíkri sýnatöku fimm dögum eftir komuna til landsins hefði hann verið laus úr sóttkví. Maðurinn hefði verið meðvitaður um að í almennum fyrirmælum sóttvarnalæknis fælist að hann yrði af þessum sökum að halda sóttkví í 14 daga frá komu til landsins. Komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að reglugerðin hefði í tilviki mannsins haft viðhlítandi stoð í sóttvarnalögum. Þá yrði við úrlausn málsins að líta til þess að skerðing á réttindum hans í formi sóttkvíar væri gerð til verndar lífi og heilsu fólks sem nyti verndar stjórnarskrár og alþjóðlegra sáttmála sem íslenska ríkið væri bundið af. Yrði því að játa löggjafanum og stjórnvöldum nokkurt svigrúm við mat á nauðsyn aðgerða. Niðurstaða héraðsdóms væri því staðfest. Verulegt almennt gildi Í ákvörðun Hæstaréttar segir að maðurinn hafi byggt á því að sakarefnið hafi verulegt almennt gildi. Málið varði lögmætisreglu, skýrleika lagaheimilda og mörk reglugerðarvalds þegar stjórnvald grípi til ráðstafana sem feli í sér frelsisskerðingu. Þá varði málið rétt einstaklings til leiðbeininga og raunhæfs aðgangs að dómstólum þegar honum er gert að sæta sóttkví. Maðurinn byggi á því að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur og gangi gegn stjórnarskrá og almennum lögum. Loks varði úrslit málsins sérstaklega mikilvæga hagsmuni hans. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að að virtum gögnum málsins verði litið svo á að dómur í því kunni að hafa verulegt almennt gildi þannig að fullnægt sé skilyrðum laga um meðferð einkamála. Beiðni um áfrýjunarleyfi sé því samþykkt.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Dómsmál Mannréttindi Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Sjá meira