Clippers vann grannaslaginn | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. október 2017 07:15 Blake Griffin var stigahæstur í liði Clippers í sigrinum á Lakers. vísir/getty
Los Angeles Clippers bar sigurorð af Los Angeles Lakers, 92-108, í NBA-deildinni í nótt. Blake Griffin skoraði 29 stig og tók 12 fráköst fyrir Clippers sem er að venjast lífinu án leikstjórnands Chris Paul. DeAndre Jordan fór mikinn undir körfunni; skoraði 14 stig og reif niður 24 fráköst. Brook Lopez skoraði 20 stig fyrir Lakers og Jordan Clarkson kom með 18 stig af bekknum. Nýliðinn Lonzo Ball lék sinn fyrsta leik fyrir Lakers í nótt. Hann skoraði aðeins þrjú stig, tók níu fráköst og gaf fjórar stoðsendingar.Russell Westbrook var með þrefalda tvennu að meðaltali í leik á síðasta tímabili og hann var með eina slíka í 105-84 sigri Oklahoma City Thunder á New York Knicks. Westbrook, sem var valinn verðmætasti leikmaður síðasta tímabils, skoraði 21 stig, tók 10 fráköst og gaf 16 stoðsendingar. Paul George og Carmelo Anthony skoruðu 28 og 22 stig í sínum fyrsta leik fyrir Oklahoma. Kristaps Porzings var langatkvæðamestur í liði New York með 31 stig og 12 fráköst.Toronto Raptors átti ekki í miklum vandræðum með að leggja Chicago Bulls að velli, 117-100. Jonas Valaciunas var stigahæstur hjá Toronto með 23 stig auk þess sem hann tók 15 fráköst. Robin Lopez skoraði 18 stig fyrir Chicago og finnski nýliðinn Lauri Markkanen var með 17 stig. Þeir tóku báðir átta fráköst.Úrslitin í nótt: LA Lakers 92-108 LA Clippers Oklahoma 105-84 NY Knicks Toronto 117-100 Chicago
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira