Við hestaheilsu en búinn að kaupa legsteininn Kolbeinn Tumi Daðason og Tryggvi Páll Tryggvason skrifa 3. nóvember 2017 22:00 Bjarni Bernharður vildi hafa eitthvað um það að segja hvernig legsteinn hann fengi. Mynd/Samsett
Bjarni Bernharður Bjarnason, ljóðskáld og myndlistarmaður, hefur gengið frá pöntun á legstein sínum. Legsteinninn hefur raunar verið hannaður og bíður Bjarni þess nú að hann verði sendur á heimili hans, eftir viku. Bjarni greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni þar sem hann segir legsteininn loks fullhannaðan. „Sérdeilis er hann flottur,“ segir Bjarni en á honum má sjá dúfu. „Ég setti þessa dúfu inn á steininn, sem getur táknað heilagan anda eða staðið sem friðartákn, það skiptir ekki máli,“ segir Bjarni. Þá standa á steininum fleyg orð, „Sjálfs sín sporgöngumaður á veginum endalausa.“ Hann segir grafskriftina þýða að hann hafi trúað á eigin sannfæringu. Vegurinn endalausi standi fyrir „eilífðina“. Listamaðurinn, sem fagnar 67 ára afmæli sínu þann 3. desember, segist hafa gengið frá greiðslu fyrir steininn. Það hafi komið honum á óvart hve ódýr hann var.Steinninn góði.Mynd/Bjarni Bernharður Bjarnason.„Steininum verður ekið heim til mín eftir viku - tíu dag og mun þá taka stöðu sína á stofugólfinu í híbýlum mínum, uns sá dagur rennur upp að anda mínum þóknast að hafa vistaskipti,“ segir Bjarni og þakkar Bergsteini legsteinum í Kópavogi fyrir viðskiptin.En af hverju að fjárfesta í legsteini, verandi á besta aldri?„Það er ekki vegna þess að ég sé að búast við snöggum dauða, ekki frekar en eðlilegt þykir,“ segir Bjarni í samtali við Vísi. Hann segist vera við góða heilsu þó að enginn viti hvenær lokakallið komi. Ástæðan er önnur. „Ég vil gjarnan hafa eitthvað um þetta að segja sjálfur. Ég tel mig vera ábyrgan mann og vill taka ábyrgð á sjálfum mér út fyrir gröf og dauða. Ég vil ekkert leggja þetta í hendurnar á börnunum mínum,“ segir Bjarni. Þá segir hann einnig að honum finnist lítið koma til hinna hefðbundnu hvítu krossa sem sjást á leiðum í kirkjugörðum víða um land. Bjarni vill fá aðeins veglegri minnismerki um sjálfan sig. „Ég vildi reisa sjálfum mér svolítið veglegri stein með tilheyrandi áletrun sem ég taldi hæfa minni persónu. Það getur vel verið að börnunum mínum, ég þekki nú mitt heimafólk, þeim hefði kannski verið trúanlegt til að láta spýtukrossinn nægja en það yrði ég ekkert sáttur við,“ segir Bjarni hlæjandi að lokum.
Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Quang Lé frjáls sinna ferða „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla eldislaxi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Sjá meira