Domino's Körfuboltakvöld: Kóngurinn hjá Valsmönnum bestur Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 18. nóvember 2017 12:45
Sjöunda umferð Domino's deildar karla kláraðist í gærkvöld með leik Njarðvíkur og Grindavíkur suður með sjó. Umferðin var að vanda gerð upp í Domino's Körfuboltakvöldi í gær og völdu sérfræðingarnir þá sem stóðu upp úr í umferðinni. Urald King var valinn leikmaður umferðarinnar eftir magnaða frammistöðu hans gegn ÍR. King setti niður 31 stig og var með 65 prósenta skotnýtingu. Hann tók ekki eitt einasta þriggja stiga skot í leiknum og aðeins tvö víti, svo stig hans komu nær öll úr teignum. Hann tók einnig 14 fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Samtals skilaði þetta King 37 framlagspunktum. King er að sjálfsögðu í úrvalsliði vikunnar eftir þessa frammistöðu. Þar eru með honum þeir Kári Jónsson, Oddur Rúnar Kristjánsson, Christopher Caird og Finnur Atli Magnússon. Ívar Ásgrímsson þjálfar liðið eftir stórsigur hans manna í Haukum á KR í DHL-höllinni í Vesturbænum. Kári og Finnur Atli voru frábærir með Haukum á fimmtudaginn, en Kári skoraði 21 stig. Finnur Atli skoraði 12 stig, tók 11 fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Christopher Caird var bestur í liði Tindastóls sem fór með auðveldan sigur á Þór Þorlákshöfn. Hann skoraði 20 stig, tók 6 fráköst og fiskaði sex villur. Hann fékk fyrir það 27 framlagspunkta. Oddur Rúnar fór fyrir Njarðvíkingum gegn Grindavík. Hann skoraði 22 stig í leiknum og skoraði úr öllum níu vítaskotum sínum. Hann tók þrjú fráköst og gaf þrjár stoðsendingar.
Dominos-deild karla Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira