Sveit Stjörnunnar varði titilinn á NM í fimleikum Kristinn Páll Teitsson skrifar 11. nóvember 2017 16:00 Frá gólfæfingum Stjörnunnar á síðasta NM. Mynd/Fimleikasambandið
Kvennasveit Stjörnunnar tók gullið á Norðurlandamótinu í fimleikum sem fer fram í Lund í Svíþjóð í dag en lið Stjörnunnar fékk alls 58.216 stig í keppninni eða 883 stigum meira en næsta lið. Stjarnan hafði töluverða yfirburði bæði í gólfæfingum í dag sem og á slánni en á trampolíninu náðu GT Vikingarna frá Svíþjóð aðeins að höggva á forskot Stjörnukvenna. Fékk Stjarnan 23.066 stig fyrir gólfæfingar, 17.350 stig fyrir æfingar á dýnu og 17.800 stig fyrir æfingarnar á trampolíninu en Stjarnan lauk keppni með 6300 stigum meira en Gerpla. Sveit Gerplu sem var skipuð ungum og efnilegum stúlkum sýndi á köflum flotta takta, fékk 21.016 stig fyrir gólfæfingarnar og 16.300 fyrir æfingarnar á trampólíni en fengu aðeins 14.600 stig á dýnu. Er þetta annað mótið í röð sem Stjarnan fagnar sigri en Stjarnan tók einnig gullið árið 2015. Þá er þetta í fjórða skiptið í röð sem íslenskt lið tekur gullið hjá kvennasveitunum og fimmta skiptið á síðustu sex mótum eftir sigur Gerplu árið 2007, 2011 og 2013. Í blönduðum flokki karla- og kvenna náðu íslensku liðin sér ekki jafn vel á strik, Gerpla hafnaði í 4. sæti með 54.516 stig en Stjarnan lenti í 8. sæti með 50.550 stig.
Fimleikar Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Fótbolti Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Carragher segir Salah vera eigingjarnan Enski boltinn Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Enski boltinn Dagskráin í dag: Tapar Man City sjötta leiknum í röð? Sport Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Fleiri fréttir Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Littler gæti mætt Sherrock á HM Cadillac á leiðinni í Formúlu 1 Aðeins Heimir og Lagerbäck með betri árangur á öldinni Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda „Fann brosið mitt á ný“ Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Carragher segir Salah vera eigingjarnan Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Harry Potter í ástralska landsliðinu Dagskráin í dag: Tapar Man City sjötta leiknum í röð? Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Kristinn: Við vorum geggjaðir Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Æsispennandi úrslitaleikir í keilunni Hareide hættur með landsliðið Lögmál leiksins: „Leifur, ertu með glósur?“ Grindvíkingar þétta raðirnar Sameinast litla bróður hjá Kolstad Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Sjá meira