Orð fá vængi Stjórnarmaðurinn skrifar 12. nóvember 2017 11:00
Um sautján prósent þjóðarinnar eru á leigumarkaði samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs. Hlutfallið er hið sama og árið 2013 en hefur þó vaxið um 5% frá 2006. Athyglisvert er að bera þennan raunveruleika saman við þann sem birtist í nýafstaðinni kosningabaráttu, en þar mátti vart annað skilja en að allt að því ómögulegt væri fyrir ungt fólk að koma undir sig fótunum í eigin húsnæði. Þannig höfðu allir flokkar aðstoð við ungt fólk í þeim sporum á stefnuskránni. Nú skal ekki gert lítið úr því stóra skrefi að flytja úr foreldrahúsum í fyrsta skipti og í eigið eða leigt húsnæði. Raunar er augljóst að þetta skref er eilítið þyngra en áður, en hlutfall fólks á þrítugsaldri sem enn býr í foreldrahúsum hefur hækkað nokkuð síðustu ár. Getur hins vegar verið að þar spili saman hækkandi húsnæðis- og leiguverð annars vegar, og hins vegar orðræðan í samfélaginu? Það hefur aldrei verið auðvelt að koma undir sig fótunum, og það á ekki að vera auðvelt. Nú er viðkvæðið að ungt fólk eigi varla möguleika. Slík orð eru fljót að fá vængi, og orðræðan verður allt í einu að stórasannleik. Ungt fólk fer að trúa því að ómögulegt sé að taka skrefið, og að peningunum sé betur varið á kaffihúsum, restauröntum eða í fataverslunum. Staðreyndin er þó sú að hlutfall fólks á leigumarkaði hér á landi er mun lægra en í öllum þeim löndum sem við berum okkur saman við. Í Bretlandi búa 60% fólks í eigin húsnæði. Í Danmörku er hlutfallið sambærilegt og litlu hærra í Finnlandi og í Svíþjóð. Einungis í Noregi af Norðurlöndunum er hlutfall þeirra sem búa í eigin fasteign sambærilegt og á Íslandi. Við þetta má bæta að aðgengi að fjármagni til kaupa á fasteignum er afar þægilegt á Íslandi miðað við nágrannalöndin, og þess utan eru laun með því hæsta sem gerist sem hlutfall af fasteignaverði. Það er helst að vaxtakjör á lánum séu ósamkeppnishæf, en slíkt telst ekki hindrun við að eignast fasteign til að byrja með. Staðreyndin er því sú að, þótt annað megi skilja á umræðunni, það er beinlínis auðvelt að eignast fasteign á Íslandi í alþjóðlegum samanburði. Það þarf heldur alls ekkert að vera neikvætt þótt leigumarkaðurinn stækki eða að fólk telji sig þurfa að dvelja lengur hjá foreldrum sínum en áður tíðkaðist. Hvort ætli sé annars meira hamlandi fyrir ungt fólk, að vera bundið steypustyrktum átthagafjötrum eða að búa enn í foreldrahúsum? Heilbrigður fasteignamarkaður byggist ekki bara á því að allir búi í eigin húsnæði. Heldur að boðið sé upp á báða kosti. Þegar kemur að eigin húsnæði eða leiguhúsnæði, er bæði einfaldlega betra.Stjórnarmaðurinn er sigldur innherji með puttann á púlsinum. Stjórnarmaðurinn skrifar í Markaðinn í Fréttablaðinu á miðvikudögum og liggur ekki á skoðunum sínum um menn og viðskiptaleg málefni.
Mest lesið Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Neytendur Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Viðskipti innlent Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Viðskipti innlent „Er nú rétt að jafna mig á slæmu Wham! blæti“ Atvinnulíf Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Viðskipti innlent Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Viðskipti innlent Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Neytendur Play sé ekki að fara á hausinn Viðskipti innlent Að púsla saman vinnu, aukavinnu og lífinu Atvinnulíf Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ „Óhóflegt gjald“ fyrir símanotkun í Bretlandi heyri fljótt sögunni til Elín Tinna nýr framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi Heiðrún Lind kaupir í Sýn Ráðin forstöðukona markaðsmála hjá Olís Eldri stjórnendur sætti sig oftar við slæma hegðun og frammistöðu Sjá meira