Kyrie er nýi kóngurinn í Boston Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. nóvember 2017 07:00 Kyrie Irving er fullkominn fyrir Boston Celtics og Boston Celtics er fullkomið lið fyrir Kyrie. vísir/getty
Flestum körfuboltaáhugamönnum kom það mikið á óvart þegar bandaríski körfuboltamaðurinn Kyrie Irving tók þá ákvörðun síðasta sumar að hann vildi losna frá Cleveland. Hann var í risastóru hlutverki hjá einu allra besta liði NBA-deildarinnar, var búinn að vinna meistaratitilinn einu sinni og spila til úrslita um titilinn þrjú ár í röð. LeBron James var vissulega ennþá kóngurinn í Cleveland en LeBron er ekkert unglamb lengur og margir sáu fyrir sér Kyrie Irving taka við Cleveland-liðinu í næstu framtíð.Kyrie Irving var hins vegar kominn með nóg af því að vera í skugga kóngsins í Cleveland. Hann vildi sýna það og sanna að hann væri klár í að vera aðalmaðurinn í sínu liði. Körfuboltaspekingar hafa ekkert klikkað á því að hrósa hæfileikum Kyries Irving á síðustu árum og margir hafa þakkað frammistöðu hans það að Cleveland náði að tryggja sér NBA-titilinn með sigri í oddaleiknum eftirminnilega árið 2016. Það var hins vegar enginn að fara að segja að Cleveland væri liðið hans Kyries Irving. Kyrie var að festast í Robin-hlutverkinu þegar bestu ár hans voru fram undan og hann vildi fá sitt lið. Skiptin á milli Boston og Cleveland voru ein stærsta fréttin í NBA á síðustu árum og í framhaldinu mátti Kyrie Irving þola ýmislegt á samfélagsmiðlum og annars staðar.Kyrie Irving er búinn að vera magnaður.vísir/gettyAftur með súperstjörnu Kyrie Irving gat aftur á móti ekki verið ánægðari og hefur verið að upplifa sannkallaða draumadaga allar götur síðan hann klæddist Boston-treyjunni í fyrsta sinn. Frammistaða hans og liðsins á tímabilinu til þessa hefur ekki aðeins fullvissað hann sjálfan um að þetta hafi verið hárrétt ákvörðun heldur einnig sannfært allan körfuboltaheiminn um að Kyrie Irving var maður sem gat borið kórónu líka. Stuðningsmenn Boston Celtics fagna því á móti að liðið er aftur komið með súperstjörnu í sitt lið. Isaiah Thomas og fleiri hafa verið stjörnuleikmenn með liðinu á síðustu árum en framganga Kyries í upphafi tímabils sýnir þeim hvernig er að hafa súperstjörnu í sínum röðum. Tölfræði Kyries Irving hefur þó ekki tekið neinum stakkaskiptum á nýjum stað. Hann er meira að segja með aðeins lakari meðaltöl í Boston en í Cleveland. Þegar á reynir er Kyrie hins vegar alltaf klár að taka af skarið á úrslitastundu og í sigurgöngunni var það öðru fremur stórbrotin spilamennska hans sem skildi á milli.Nú er Kyrie stjarnan en ekki LeBron.vísir/gettyEfni í nýtt meistaralið Sigursælu liðin hans Larrys Bird og liðin hans Bills Russell unnu bæði aðeins einu sinni fleiri leiki í röð en Boston Celtics á síðustu fimm vikum. Bill Russell vann ellefu meistaratitla með Boston-liðinu og Larry Bird og félagar bættu þremur við á níunda áratugnum. Nú sjá stuðningsmenn Boston aftur efni í meistaralið í Boston Garden. Boston Celtics er varnarlið með sterka liðsheild þar sem þjálfarinn Brad Stevens hefur gert frábæra hluti með misgóðan mannskap síðustu ár. Kyrie Irving hefur smollið inn í liðið og án þess að breyta grunngildum Celtic-manna. Hann er frábær sóknarmaður sem skorar á þig úr öllum áttum og frá öllum stöðum á vellinum en hann er einnig viljugur varnarmaður og stórkostlegur sendingamaður. Celtics-liðið er því að fá hugrakkan og hæfileikaríkan leikmann til að gera út um jafna leiki á sama tíma og sá hinn sami fellur vel inn í menningu liðsins. Það er þó enn frekar spilamennska Kyries á lokamínútum jafnra leikja sem eru að koma honum inn í umræðuna um mikilvægasta leikmann deildarinnar.vísir/gettyAllt í einu í MVP-umræðunni Kyrie var aldrei inni í þeirri umræðu sem liðsfélagi LeBrons James en menn fá stjörnur í augun við að skoða tölfræði hans á úrslitastundu í vetur. 65 stig, 62 prósenta skotnýting, 10 stoðsendingar og enginn tapaður bolti á 38 mínútum á síðustu fimm mínútum í leikjum þegar munur á liðunum hefur verið fimm stig eða meira. Þetta eru MVP-tölur. Boston vann svo sannarlega í happadrættinu með þessum skiptum en á móti hefur ólukkan bankað nokkrum sinnum upp á á tímabilinu. Boston landaði einum stærsta bitanum á markaðnum í sumar þegar Gordon Hayward samdi við liðið en hann fótbrotnaði á hræðilegan hátt eftir aðeins sex mínútur í fyrsta leiknum. Al Horford missti af leikjum eftir höfuðhögg, Kyrie var sleginn út í einum leiknum á fyrstu mínútu og Jaylen Brown spilaði þrátt fyrir að hafa misst einn sinn besta vin. Boston-liðið hélt áfram þrátt fyrir öll áföllin og hélt áfram að vinna leiki sína.Hörkutól eftir þungt högg Hafi eitthvað sannfært stuðningsmenn Boston endanlega um að Kyrie væri fyrir alvöru maðurinn sem gæti leitt liðið til metorða þá er það frammistaða hans eftir að bein brotnaði í andliti hans við þungt slysahögg frá samherja. Kyrie missti bara af einum leik og mætti til baka með grímu og í hetjustuði. Hann hjálpaði Boston að vinna meistarana í Golden State og skoraði síðan 77 stig úr aðeins 34 skotum í sigurleikjum á Atlanta og Dallas. Sigurgangan endaði reyndar með tapi á móti Miami Heat í fyrrinótt en stuðningsmenn Boston geta þakkað fyrir margt um þessa þakkargjörðarhátíð og flestir þeirra munu örugglega þakka fyrir að einn Kyrie Irving klæðist nú grænu.
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira