Siglufjarðarvegur lokaður vegna snjóflóðs Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. nóvember 2017 17:11 Frá Siglufirði. vísir/auðunn
Uppfært klukkan 18:20: Siglufjarðarvegur verður lokaður í kvöld og nótt að minnsta kosti vegna snjóflóða sem fallið hafa á veginn. Siglufjarðarvegi hefur verið lokað um óákveðinn tíma vegna snjóflóðs sem féll þar síðdegis í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Víglundur Rúnar Pétursson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar, segir í samtali við vef RÚV að flóðið sé nokkuð stórt og að það loki veginum alveg. Bílar hafi verið beggja megin flóðsins en ekki er vitað um slys á fólki eða skemmdir á ökutækjum. Þá er búið að opna Biskupstungnabraut á Suðurlandi á ný en veginum var lokað vegna umferðarslyss sem varð þar fyrir hádegi í dag. Nú síðdegis er því spáð að veður muni versna til muna norðanlands sem og á norðanverðum Vestfjörðum. Í tilkynningu Vegagerðarinnar segir að reikna megi með 15 til 20 metrum á sekúndu með ofankomu og skafrenningi. Það geti því orðið mjög blint við þessar aðstæður sem og á láglendi. „Þó ekki snjói á sunnanverðum Vestfjörðum verður þar skafrenningur sem og á Snæfellsnesi og í Borgarfirði. Jaðar hríðarbakkans er skarpur. Honum er spáð við Tjörnes. Þar fyrir austan helst veður skaplegt,“ segir á vef Vegagerðarinnar. Færð og aðstæður á vegum eru annars þessar:Það er hálka eða hálkublettir á flestum vegum á Suðurlandi.Hálka er á flestum leiðum á Vesturlandi og eitthvað um skafrenning. Flughálka er á Útnessvegi.Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja og éljagangur og skafrenningur á flestum leiðum. Þæfingur er á Hrafnseyrarheiði en Dynjandisheiði ófær eins er ófært úr Bjarnarfirði og norður í Gjögur.Vetrarfærð er á Norðurlandi, snjóþekja eða hálka víðast hvar. Éljagangur eða snjókoma mjög víða. Þæfingsfærð er á Dettifossvegi.Á Austur- og Suðausturlandi er víða hálka eða snjóþekja en greiðfært frá Norðfirði suður að Höfn.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Sjá meira