Innlent

Lög­reglan hafði af­skipti af tugum öku­manna

Freyja Þórisdóttir skrifar
Lögreglan hefur í ýmsu að snúast.
Lögreglan hefur í ýmsu að snúast. Vísir/Lýður

Mikill fjöldi ökumanna á yfir höfði sér kærur eða sekt vegna ýmissa umferðarlagabrota eftir daginn í dag en þar á meðal eru sjö sem eiga von á sekt vegna þess að hafa lagt ólöglega. 

Alls voru ríflega hundrað og fjörutíu mál skráð í kerfum lögreglu frá klukkan fimm til 17:00 en í það minnsta þrír voru vistaðir í fangageymslum á tímabilinu. Þá voru fimm ökumenn kærðir fyrir notkun farsíma við akstur, þrír á varðsvæði stöðvar eitt en tveir á varðsvæði stöðvar þrjú.

Nokkrir voru stöðvaðir og handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna en einn þeirra var vistaður í fangaklefa vegna annars máls. Flestir hinna voru látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku.

Einn ökumaður var kærður fyrir að aka gegn rauðu ljósi og annar fyrir að aka hraðar en leyfilegt var eða á 108 kílómetrum á klukkustund þar sem leyfilegur hámarkshraði er áttatíu kílómetrar á klukkustund.

Þá var einn ökumaður kærður fyrir að hafa svokallaðar filmur í fremri hliðarrúðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×