Samtök iðnaðarins og Bílgreinasambandið slíta viðræðum Daníel Freyr Birkisson skrifar 30. nóvember 2017 13:31 Samtök iðnaðarins og Bílgreinasambandið hafa slitið viðræðum. Vísir/Eyþór
Bílgreinasambandið (BGS) mun ekki ganga til liðs við Samtök iðnaðarins (SI) eins og stefnt var að, en fyrr á þessu ári hófust samningaviðræður milli aðila sem ekki gengu eftir. Þau samlegðaráhrif sem horft var til með innkomu Bílgreinasambandsins í Samtök iðnaðarins reyndust ekki vera eins mikil og gert var ráð fyrir í upphafi viðræðnanna. Því hefur það orðið að samkomulagi beggja aðila að slíta viðræðunum. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá báðum aðilum. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, vonast eftir því að tengsl samtakanna og BGS haldist góð. „Það hefur því miður ekki náðst samkomulag eins og til stóð. Það var mikill vilji til þess að láta á það reyna en þegar til kom reyndist vera of langt á milli í hugmyndum um samlegðaráhrifin sem voru forsenda viðræðnanna. Við eigum það sameiginlegt að vilja öflugan iðnað í landinu og vonumst eftir að eiga áfram gott samtal við stjórnendur BGS.“ Jón Trausti Ólafsson, formaður Bílgreinasambandsins, telur hagsmuni félagsmanna betur borgið utan samtakanna eins og er. „Stjórn BGS hefur metið það svo að hagsmunum félagsmanna sé að svo stöddu betur borgið utan raða SI heldur en innan samtakanna. Við viljum áframhaldandi jákvæða og góða samvinnu við SI með það að markmiði að efla iðnað og standa vörð um góða menntun og fagleg vinnubrögð. Við viljum því áfram eiga góð samskipti við stjórnendur SI.“
Tengdar fréttir Bílgreinasambandið gengur til liðs við Samtök iðnaðarins Jón Trausti Ólafsson var endurkjörinn formaður Bílgreinasambandsins. 7. apríl 2017 14:30 Mest lesið Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Neytendur Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Viðskipti innlent „Er nú rétt að jafna mig á slæmu Wham! blæti“ Atvinnulíf Play sé ekki að fara á hausinn Viðskipti innlent Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Neytendur Sýnishornið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim Neytendur Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Viðskipti innlent Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Viðskipti innlent Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Viðskipti innlent Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ „Óhóflegt gjald“ fyrir símanotkun í Bretlandi heyri fljótt sögunni til Elín Tinna nýr framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi Heiðrún Lind kaupir í Sýn Ráðin forstöðukona markaðsmála hjá Olís Eldri stjórnendur sætti sig oftar við slæma hegðun og frammistöðu Sjá meira
Bílgreinasambandið gengur til liðs við Samtök iðnaðarins Jón Trausti Ólafsson var endurkjörinn formaður Bílgreinasambandsins. 7. apríl 2017 14:30