Myrt eftir Tinderstefnumót Stefán Ó. Jónsson skrifar 6. desember 2017 07:06 Sydney Loofe greindi frá fyrirætlunum sínum á Snapchat. Facebook
Lík bandarískrar konu sem fór á stefnumót með aðstoð smáforritsins Tinder um miðjan nóvembermánuð er fundið eftir um mánaðarleit. Síðast sást til Sydney Loofe, sem er 24 ára frá Lincoln í Nebraska, þann 15. nóvember þegar hún hugðist hitta konu sem hún kynntist í gegnum forritið. Par er grunað um að tengjast dauða hennar; kona á þrítugsaldri og meðleigjandi hennar. Þau birtu myndbönd á samfélagsmiðlum þar sem þau lýstu yfir sakleysi sínu.Aubrey Trail (t.v.) og Bailey Boswell hafa verið handtekin vegna málsins.Lögreglan í LincolnHaft er eftir lögreglustjóra Lincolnborgar að stafræn gögn hafi vísað þeim að óbyggðum Clay-sýslu, sem er í suðurhluta Nebraskaríkis. Þar hafi lögreglan fundið lík á mánudag sem reyndist vera Loofe. Lögreglan telur að henni hafi verið ráðinn bani. Fjölmargir höfðu leitað að konunni undanfarna daga, til að mynda fulltrúar Alríkislögreglunnar FBI. Síðast sást til Loofe áður en hún fór á stefnumót með Bailey Boswell, konunni sem nú er í haldi lögreglunnar. Loofe sendi mynd á Snapchat þar sem hún sagðist vera „tilbúin fyrir stefnumótið“ en þær kynntust með aðstoð stefnumótaforritsins Tinder sem fyrr segir. Boswell neitar allri sök og segist einungis hafa skutlað Loofe á stefnumótið.Frétt BBC um málið má lesa hér.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Lög brotin við framleiðslu „túrbókjúklings“ í Danmörku Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Sjá meira