Sif Gunnarsdóttir ráðin skrifstofustjóri menningarmála borgarinnar Kjartan Kjartansson skrifar 3. desember 2017 07:41 Sif hefur stýrt Norræna húsi Færeyja síðasta árið. Reykjavíkurborg
Sif Gunnarsdóttir hefur verið ráðin skrifstofustjóri menningarmála hjá Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar. Hún mun meðal annars stýra viðburðateymum helstu hátíða borgarinnar eins og Menningarnætur. Alls sóttu 54 um stöðuna sem var auglýst 3. nóvember. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að Sif hefur stýrt Norræna húsinu í Færeyjum undanfarin ár en húsið er stærsta menningarstofnun Færeyja og sinnir öllum tegundum lista og menningar. Hún tekur við starfinu á næsta ári. Sif er með meistaragráðu í menningarmiðlun frá Háskólanum í Óðinsvéum, B.A. í danskri tungu og bókmenntun og diplómanám í rekstrarhagfræði. Hún var forstöðumaður Höfuðborgarstofu á árunum 2007 til 2013 og þar áður verkefnastjóri viðburða hjá Höfuðborgarstofu, menningarfulltrúi í Gerðubergi og aðstoðarforstöðumaður Gerðubergs. Skrifstofustjóri menningarmála hjá Menningar- og ferðamálasviði annast almenna stjórnsýslu á vettvangi menningarmála og sér um starfssamninga, húsnæðissamninga, afgreiðslu styrkja og viðurkenningar. Skrifstofustjóri ritstýrir auk þess starfsáætlun sviðsins og heldur utan um mótun menningarstefnu, uppfærslu aðgerðaáætlunar, árangursmat sviðsins í menningarmálum og ýmis sérverkefni sem henni er falið af sviðsstjóra. Frá og með áramótum stýrir skrifstofustjóri einnig viðburðateymi Menningar- og ferðamálasviðs sem sér um Vetrarhátíð í Reykjavík, Barnamenningarhátíð, 17. júní, Menningarnótt, tendrun Friðarsúlunnar og aðventuhátíð í desember.
Tengdar fréttir 54 vilja verða skrifstofustjóri menningarmála í Reykjavík Umsóknarfrestur rann út þann 19. nóvember. 23. nóvember 2017 10:06 Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Innlent Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Sjá meira
54 vilja verða skrifstofustjóri menningarmála í Reykjavík Umsóknarfrestur rann út þann 19. nóvember. 23. nóvember 2017 10:06