Lýsa eftir erlendum ferðamanni á níræðisaldri Kjartan Kjartansson og Þórdís Valsdóttir skrifa 2. desember 2017 11:32 Lögreglan er ekki með mynd af manninum og styðst aðeins við takmarkaða lýsingu á honum. Vísir/Eyþór
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir bandarískum ferðamanni sem ekkert hefur spurst til frá því að hann kom til landsins á fimmtudag. Maðurinn er 83 ára gamall, fæddur árið 1934. Ferðamaðurinn heitir Michael Roland Sasal. Lögreglan er ekki með mynd af honum og hefur einungis takmarkaða lýsingu. Hann er sagður með þunnt grátt hár og notar gleraugu. Ekkert er vitað um klæðnað hans. „Ég sendi póst á öll hótel í landinu til að grennslast fyrir um hann því hann hafði komið í fyrradag til landsins með flugi frá Washington og síðan hefur ekkert spurst til hans frá því hann kom út úr flugstöðinni,“ segir Gunnar Hilmarsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hann hefur ekki fengið nein viðbrögð frá þeim hótelum sem fengu tölvupóst. Michael ætlaði að hitta konu á Hótel Kríunesi við Elliðavatn en hann kom ekki. „Hann er ekki með síma og notar ekki samfélagsmiðla,“ segir Gunnar. Lögreglan hefur staðfest að hann fór í gegnum vegabréfaskoðun í Leifsstöð og er því á landinu. Gunnar segir að lögreglan hafi ekki enn verið í sambandi við fjölskyldu mannsins vestanhafs. Þess er óskað að ef einhverjir verða hans varir eða viti um ferðir hans þá verði haft samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000.
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira