Óskabein kaupir fjórðungshlut í Endor Daníel Freyr Birkisson skrifar 19. desember 2017 11:36 Fannar Ólafsson hjá Óskabeini og Gunnar Guðjónsson hjá Endor. óskabein
Fjárfestingfélagið Óskabein, sem meðal annars á stóran hlut í VÍS, hefur gengið frá kaupum á fjórðungshlut í íslenska upplýsingatæknifyrirtækinu Endor. Segir í tilkynningu frá Óskabeini að um sé að ræða lið í uppbyggingu Endor sem félags á alþjóðlegum markaði. Endor er ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í að hámarka rekstrarhagkvæmni fjárfestinga í upplýsingatækni og nýtir til þess nýjustu tækni í sjálfvirknivæðingu, ásamt því að vinna með virtum samstarfsaðilum víða um heim. Gunnar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Endor, segir verkefnið spennandi. „Það er fagnaðarefni fyrir ungt félag að fá öfluga fjárfesta í ferðalagið. Tekjur Endor hafa aukist tífalt árlega síðustu ár og útlit er fyrir sama vöxt í ár. Viðtökur við áherslum okkar hafa verið frábærar og verkefnastaða er sterk hérlendis. Félagið hefur verið í spennandi verkefnum erlendis svo aðkoma Óskabeina að félaginu styður einstaklega vel við framhaldið“. Fannar Ólafsson, einn af eigendum Óskabeins, telur að nú sé rétti tíminn til þess að stíga áfram með félagið. „Vöxtur Endor ár frá ári hefur verið gríðarlegur, enda eru starfsmenn og stjórnendur félagsins þungavigtarmenn í greininni. Við teljum þetta rétta tímann til að taka næsta skref með félagið og mun þessi fjárfesting auðvelda félaginu að sækja á nýja markaði og vaxa“.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira