Dularfulla andlátið rannsakað sem morð Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. desember 2017 07:40 Barry Sherman stofnaði lyfjafyritækið sem malaði gull. Vísir/Getty
Lögreglan í Toronto í Kanada telur að milljarðamæringnum Barry Sherman og eiginkonu hans Honey Sherman hafi verið ráðinn bani. Fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins að málið sé komið inn á borð morðdeildar lögreglunnar - sem reynir að komast til botns í því hvernig „dularfullan“ dauðdaga þeirra bar að garði.Sjá einnig: Dularfullt andlát einna ríkustu hjóna KanadaAndlát Sherman-hjónanna hefur vakið mikla athygli en þau voru meðal ríkustu hjóna Kanada. Barry Sherman stofnaði og stýrði lyfjafyrirtækinu Apotex, sem er eitt stærsta lyfjafyrirtæki heims. Fasteignasali fann lík hjónanna í kjallara heimilis þeirra. Ekkert benti til að brotist hafi verið inn til þerra. Ummerki á hálsum hjónanna gefa til kynna að þau kunni að hafa verið kyrkt til bana, ef marka má vef breska ríkisútvarpsins. Lögreglan hefur lítið viljað gefa upp um málið - annað en að andlát þeirra sé grunsamlegt og að málið sé rannsakað undir þeim formerkjum. Aðstandendur fjölskyldunnar þvertóku fyrir það um helgina að um morð og sjálfsvíg kynni að vera um ræða eins og kanadískir miðlar höfðu greint frá. Talið er að persónulegur auður Sherman hafi numið allt að 3,2 milljarða dala, eða um 330 milljörðum íslenskra króna.
Tengdar fréttir Dularfullt andlát einna ríkustu hjóna Kanada Kanadíski milljarðamæringurinn Barry Sherman og eiginkona hans Honey Sherman fundust látin á heimili sínu í Toronto. Lögregla telur að andlát þeirra hafi borið að með grunsamlegum hætti 16. desember 2017 08:31 Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Innlent Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Erlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Sjá meira
Dularfullt andlát einna ríkustu hjóna Kanada Kanadíski milljarðamæringurinn Barry Sherman og eiginkona hans Honey Sherman fundust látin á heimili sínu í Toronto. Lögregla telur að andlát þeirra hafi borið að með grunsamlegum hætti 16. desember 2017 08:31