Börnin ekki látin syngja jólalög með textum um kynhlutverk Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 12. desember 2017 22:00 Magga Pála stofnandi Hjallastefnunnar segir óþarfi að syngja jólalög fyrir börn sem ýti undir staðalmyndir um kynhlutverk.
Núna í desember hefur verið umræða á samfélagsmiðlum um texta í jólalögum sem sungin eru á jólaböllum um allt land. Mörgum finnst textarnir orðnir úreltir og að þeir ýti undir staðalmyndir um hlutverk stúlkna og drengja, kvenna og karla. Nokkrir hafa í því samhengi hrósað Hjallastefnunni fyrir að sniðganga þá texta sem fjalla um kynhlutverk og breyta textanum í mörgum lögum sem sungin eru fyrir börnin. Margrét Pála Ólafsdóttir stofnandi Hjallastefnunnar, betur þekkt sem Magga Pála, segir í samtali við Vísi að hún hafi byrjað á þessu fyrir meira en 30 árum. „Rétt eins og ég ígrunda og endurskoða allt sem ég geri í starfi, þá geri ég það líka gagnvart þeim lögum og ljóðum sem ég vel.“Skiptir allt máliLögin sem oft eru tekin sem dæmi um þetta í umræðunni eru Adam átti syni sjö, Nú skal segja og Nú er Gunna á nýju skónum. „Jafnrétti er hugsjón okkar í Hjallastefnuskólunum og þess vegna syngjum við alltaf „Adam átti syni sjö“ og við syngjum líka og stundum á undan „Eva átti dætur sjö.“ Við sleppum lögum og ljóðum sem eru með þessum kynbundnu tilvísunum eins og um Sigga á síðum buxum og Sollu í bláum kjól. Hvernig stelpurnar vagga brúðu og strákarnir sparka bolta. Við bara sleppum þessu, það er svo margt skemmtilegt til.“ Magga Pála segir að hún hafi fengið mjög góð viðbrögð við þessu frá foreldrum og starfsfólki. „Í okkar huga er þetta ekkert flókið. Það er fjölmargt í menningu okkar sem er allt í lagi að víkja til hliðar og vera með ákveðna endurskoðun í gangi. Þetta skiptir máli, það skiptir allt máli fyrir börn sem eru að móta sjálfsmyndina og kynímyndina.“ Er þetta einnig gert með bækur og sögur hjá Hjallastefnunni. „Einhverjir segja að þetta sé nú bara bull eða sé úti um allt og þá svara ég því bara þannig að á okkar vakt og á minni vakt þá ætlum við ekki að fóðra þessar gömlu hugmyndir. Hver og einn velur fyrir sig og við veljum þetta fyrir okkur, að koma með meiri ferskleika inn í jólalögin.“Nokkur lög eru á bannlista Hjallastefnunnar fyrir jólin.Vísir/GettyÓvirðing við karla og konurEinhverjir aðrir leikskólar og skólar gera þetta sama en Magga Pála telur að sem flestir ættu að taka upp þessa stefnu. Að hennar mati er ekki nóg að útskýra bara fyrir börnunum að þetta séu gamlar hefðir og þetta sé öðruvísi í dag. „Börn, sérstaklega undir átta ára aldri, eru ekki á þeim þroskastað að velta því fyrir sér. Þau einfaldlega heyra og sjá og innhverfa fyrirmyndirnar sem við gefum þeim. Þess vegna vöndum við okkur.“ Annað lag sem Hjallastefnan sleppir er Hátíð í bæ en þar fær strákurinn bók en stúlkan nál og tvinna. Bendir hún á að í Nú er Gunna á nýju skónum sé Siggi í buxum en Solla í kjól, mamman í eldhúsinu en pabbinn búinn að undirleggja heimilið til þess að finna flibbahnappinn sinn. „Þetta er óvirðing fyrir bæði karla og konur.“ Sjálf samdi hún eitt sinn ókynbundinn jólatexta sem börnin syngja í leikskólum og grunnskólum Hjallastefnunnar. „En fyrst og fremst gætum við okkar þar sem eru greinilega neikvæðar kynjafyrirmyndir.“Þarf ekki að vera dýrt eða flókiðMagga Pála segir að fyrir jólin sé mikið um að jólagjafir og skógjafir séu markaðssettar fyrir annað hvort stelpur eða stráka. „Börn eru ekki vernduð gagnvart markaðinum. Við erum með jafnréttislög í þessu landi en þegar þú horfir á auglýsingar í desember þá getur þú ekki áttað þig á því. Ég bið fólk í öllum bænum að vera ekki með sjónvarpið í gangi og fara ekki með börnin í stórmarkaði og búðir þar sem að er beint verið að markaðssetja gagnvart börnum.“ Magga Pála hvetur jólasveina til þess að hafa skógjafirnar í desember litlar, ódýrar og nytsamar. Þetta þurfi hvorki að vera dýrt né flókið. „Þegar ég tala við foreldra í ræðu eða riti þá hvet ég alltaf til að sýna fulla skynsemi. Í einfaldleikanum er best að varast einhverja kynjamismunun. Höldum þessu einföldu.“ Segir hún að það sama megi segja um jólagjafir. Vonar hún einnig að fólk hætti að kaupa súkkulaðidagatöl handa ungum börnum í desember. „Mikið óskaplega vona ég að við náum að útrýma þessum súkkulaðidagatölum sem eru í 24 daga. Þau eru skelfileg og hafa miklu meiri neikvæðar en jákvæðar afleiðingar fyrir börn. Það duga 13 skynsamir jólasveinar sem gefa smáræði í skóinn þegar vel gengur.“
Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Innlent Fleiri fréttir Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Sjá meira