Kristján Þór segir frá styrkjum og launum hjá Samherja Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. desember 2017 10:59 Kristján Þór hefur gegnt stöðu bæjarstjóra á Dalvík, Akureyri og Ísafirði. Vísir/Stefán
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segist munu meta hæfi sitt sérstaklega ef upp komi mál í hans embættistíð sem snerti Samherja. Hann var stjórnarmaður í fimm ár hjá fyrirtækinu og hefur í tvígang þegið fjárhagslegan styrk frá Samherja í prófkjörsbaráttu innan Sjálfstæðisflokksins. Þá virðist ráðherrann og skipstjórinn fyrrverandi hafa hitt á góða túra sem háseti hjá Samherja í seinni tíð. Hann fór í tvo slíka, sumarið 2010 og aftur 2012 samtals 27 daga. Hásetahluturinn var rúmar þrjár milljónir króna.Skipstjóri í tæpan áratug Ráðherrann, sem stendur á sextugu, sér ástæðu til að upplýsa um fyrri störf sín. Líklega í kjölfar umræðu um tengsl hans við sjávarútvegsfyrirtækisins Samherja. Samherji er með næstmestan kvóta á landinu á eftir HB Granda. Kristján Þór kann vel til verka á sjó. Hann var háseti á togurum í fimm sumur á áttunda áratugnum, stýrimaður og skipstjóri í fjögur ár til viðbótar og nokkur sumur. Þá kenndi hann við Stýrimannaskólann á Dalvík í fimm ár á níunda áratugnum. Hann hefur setið í stjórnum Útgerðafélags Dalvíkinga, Söltunarfélags Davlíkur, Sæplasts, Togaraútgerðar Ísafjarðar og Samherja. Síðastnefnda stjórnarsetan var sú síðasta, frá 1996 til 2000.Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja sem á næst mestan kvóta á landinu.vísir/auðunnNauðsynlegt að tengsl séu uppi á borðum „Það er óumflýjanlegt í smáu þjóðfélagi að stjórnmálamenn þekki marga, sérstaklega þegar viðkomandi hafa búið í sama bæjarfélagi eða unnið í sama geira. Þá skiptir mestu að allir sem veita stjórnmálamanninum umboð og aðhald, hvort sem um er að ræða kjósendur, aðra stjórnmálamenn eða fjölmiðla, séu meðvitaðir um tengslin og getið metið og gagnrýnt störf stjórnmálamannsins í því ljósi,“ segir Kristján Þór. Það sé bæði nauðsynlegt og sjálfsagt í nútíma lýðræðissamfélagi. „Í því samhengi er mér ljúft og skylt að upplýsa að við Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, höfum þekkst síðan við vorum ungir menn.“ Hann hafi verið stjórnarformaður í eitt og hálft ár hjá Samherja en annars stjórnarmaður þau fimm ár sem hann átti sæti í stjórn, 1996-2000. Þrjár milljónir fyrir 27 daga „Samtals 27 daga, í ágúst 2010 og júlí 2012, fór ég sem háseti á makrílveiðar. Einu launin sem ég hef þegið hjá fyrirtækinu eru fyrir áðurnefnda stjórnarsetu þar sem stjórnarlaun voru tæp 30 þúsund á mánuði og stjórnarformaður fékk tvöföld þau laun. Hásetahluturinn fyrir veiðitúrinn í ágúst 2010 var 1.374.929 kr og í júlí 2012 1.661.800 kr..“ Þá hafi Samherji í tvígang styrkt framboð hans í prófkjöri innan Sjálfstæðisflokksins. Um hálfa milljón árið 2007 og 100 þúsund krónur árið 2013. „Ég tel mig vera hæfan til þess að taka ákvarðanir um málefni sem snerta sjávarútveginn á Íslandi í heild sinni. Komi upp mál sem snerta Samherja sérstaklega mun ég að sjálfsögðu meta hæfi mitt í ljósi framangreinds líkt og allir stjórnmálamenn þurfa að gera þegar fjölskyldu-, vina- og kunningjatengsl gætu haft áhrif á afstöðu til einstakra mála.“Flokksystkinin Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Kristján Þór Júlíusson mæta til fundar í Valhöll á dögunum.Vísir/VilhelmAð neðan má sjá erindi Kristjáns Þórs í heild sinni.Það var sérstaklega ánægjulegt að vera trúað fyrir embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra af þingflokki Sjálfstæðisflokksins að tillögu formanns flokksins. Ég þakklátur því trausti. Ég er fæddur og uppalinn á Dalvík í Eyjafirði. Þar, eins og í flestum sjávarbyggðum landins, hefur útgerð og fiskvinnsla alla tíð verið samofin lífi íbúanna. Eftir að ég tók við embætti hef ég fengið fyrirspurnir um bakgrunn minn í sjávarútvegi. Störf mín sem stýrimaður og skipstjóri, kennari við Stýrimannaskólann, ásamt öðrum störfum tengdum sjávarútvegi og sveitarstjórnarmálum tel ég að gefi mér einstaka og djúpa innsýn í þau verkefni sem fyrir höndum eru í ráðuneyti sjávarútvegsmála. Mér finnst því ekki úr vegi að birta hér nokkuð ýtarlegt yfirlit um fyrri störf á þessu sviði og öðrum, allt frá því að ég byrjaði 12 ára að reyna að hjálpa til við netavinnu og steypa sökkur í netagerðinni hjá pabba mínum, en sjómannsferillinn hófst þegar ég var 16 ára. Háseti á togurum á sumrin 1973–1977 Stýrimaður og skipstjóri 1978–1981 og á sumrin 1981–1985 Kennari við Stýrimannaskólann á Dalvík 1981–1986 Hef setið í stjórnum eftirtalinna fyrirtækja sem tengdust sjávarútvegi: Útgerðarfélag Dalvíkinga hf. 1987–1990 Söltunarfélag Dalvíkur hf. 1987–1993 Sæplast hf. 1988–1994 Togaraútgerð Ísafjarðar hf. 1996–1997 Samherji hf. 1996–2000 Flestir sem þekkja til starfsemi sveitarfélaga vita að á þeim vettvangi eru mikil samskipti og verkefni er tengjast atvinnulífi viðkomandi sveitarfélaga. Árin 1986–2007 starfaði ég á vettvangi sveitarstjórna landsins. Á þessum árum öllum voru mér falin mikilvæg trúnaðarstörf þar sem tekist var á við margvísleg úrlausnarefni og þ.m.t. atvinnu og byggðamál. Hér vil ég sérstaklega nefna eftirfarandi: Bæjarstjóri Dalvíkur 1986–1994 Bæjarstjóri Ísafjarðar 1994–1997 Bæjarstjóri Akureyrar 1998–2006 Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga 1998–2007 Formaður stjórnar Hafnasambands sveitarfélaga 1994–1997 Héraðsráð Eyjafjarðar 1990–1994 Formaður stjórnar Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf. 1987–1992 Formaður stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar 1998–2007 Stjórn Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands 1999–2008 Formaður stjórnar Lífeyrissjóðs Norðurlands 2000–2007 Formaður stjórnar Eyþings 1998–2002 Í stjórn Landsvirkjunar 1999–2007 Í Ferðamálaráði Íslands 1999–2003 Í stjórn Fasteignamats ríkisins 2000–2007 Það er óumflýjanlegt í smáu þjóðfélagi að stjórnmálamenn þekki marga, sérstaklega þegar viðkomandi hafa búið í sama bæjarfélagi eða unnið í sama geira. Þá skiptir mestu að allir sem veita stjórnmálamanninum umboð og aðhald, hvort sem um er að ræða kjósendur, aðra stjórnmálamenn eða fjölmiðla, séu meðvitaðir um tengslin og getið metið og gagnrýnt störf stjórnmálamannsins í því ljósi. Það er bæði nauðsynlegt og sjálfsagt í nútíma lýðræðissamfélagi. Í því samhengi er mér ljúft og skylt að upplýsa að við Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, höfum þekkst síðan við vorum ungir menn. Fyrir um tuttugu árum (1996–2000) sat ég í stjórn Samherja, þar af sem stjórnarformaður í u.þ.b. eitt og hálft ár. Samtals 27 daga, í ágúst 2010 og júlí 2012, fór ég sem háseti á makrílveiðar. Einu launin sem ég hef þegið hjá fyrirtækinu eru fyrir áðurnefnda stjórnarsetu þar sem stjórnarlaun voru tæp 30 þúsund á mánuði og stjórnarformaður fékk tvöföld þau laun. Hásetahluturinn fyrir veiðitúrinn í ágúst 2010 var 1.374.929 kr og í júlí 2012 1.661.800 kr.. Fyrirtækið hefur síðan tvisvar styrkt framboð mitt í prófkjöri innan Sjálfstæðisflokksins, 500 þúsund kr. árið 2007 og 100 þúsund kr. árið 2013. Ég tel mig vera hæfan til þess að taka ákvarðanir um málefni sem snerta sjávarútveginn á Íslandi í heild sinni. Komi upp mál sem snerta Samherja sérstaklega mun ég að sjálfsögðu meta hæfi mitt í ljósi framangreinds líkt og allir stjórnmálamenn þurfa að gera þegar fjölskyldu-, vina- og kunningjatengsl gætu haft áhrif á afstöðu til einstakra mála.
Alþingi Kosningar 2017 Sjávarútvegur Stj.mál Mest lesið Sigurvegarar í keppni Musks ekki valdir af handahófi Erlent Útsendarar GRU sagðir hafa sent eldsprengjur með flugvélum Erlent Gera nú ráð fyrir 43 prósent meiri halla á ríkissjóði Innlent Pennsylvanía nauðsynleg til að tryggja sigur Erlent Stjórnarliðið reynir að hysja upp um sig brækurnar í vegamálum Innlent „Þetta var hræðilegt slys“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Rauð veðurviðvörun og 80 flugferðum aflýst eða frestað Erlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir árekstur Innlent Formaður Kyndils lést í slysinu við Tungufljót Innlent Fleiri fréttir Segja verkfall kennara skapa ójafnræði og óréttlæti Gera nú ráð fyrir 43 prósent meiri halla á ríkissjóði Stjórnarliðið freistar þess að rjúfa útboðsstopp í vegagerð Einn fluttur á sjúkrahús eftir árekstur Grasrótin að styrkjast eftir samstarf sem mögulega var of dýrkeypt Haustið 2008 að einhverju leyti „reyfarakennt“ Sex kílómetrar urðu átta í straumhörðum og ísköldum sjónum „Þetta var hræðilegt slys“ Hræðilegt slys og sögulegar kosningar Mögulega merki um að lítið magn kviku hafi verið á ferð Læknar boða miklu harðari aðgerðir Sigurður Ingi þögull um búsetuúrræðin Formaður Kyndils lést í slysinu við Tungufljót Leituðu áfram undir ís vegna misræmis milli lista og leiðsögumanna Yfirbuguðu konu með lítið barn og hníf í hendi Sjálfstæðismenn vilja taka upp samræmd próf Sjónum beint til vinstri í kosningapallborðinu Ríkið þrýsti læknum út í harðari verkfallsaðgerðir Aukaþingmaður leikur enn lausum hala Baráttan í Bandaríkjunum á lokametrunum Málið komið á „endastöð“ og rannsókn lokið Bergþór hæðist að Bjarna og Sigurði Inga Enginn stjórnmálamaður á loftslagsráðstefnu „Brottfararúrræði þurfa ekki að vera grimm eða harðneskjuleg” Enginn verið stuðaður með rafbyssu ennþá Þétt skjálftavirkni í nótt en ekki nægur kraftur fyrir kvikuhlaup Verkfallið hafi mikil áhrif á fáar fjölskyldur og lítil áhrif á samfélagið Umræða á Bylgjunni ekki ígildi stjórnvaldsákvörðunar Selur íbúð sem hann gerði upp og flytur í ódýrari íbúð Banaslys við Tungufljót Sjá meira